Fréttir og útgáfa

Starfsemin

Um SFF

Fréttir og útgáfa

Fréttir og greinar(https://www.sff.is/frettir-og-greinar)Umsagnir(https://www.sff.is/umsagnir)Útgáfa(https://www.sff.is/utgafa)Viðburðir(https://www.sff.is/vidburdir)

Starfsemin

Gagnlegar upplýsingar

Fjármálaþjónusta(https://www.sff.is/fjarmalathjonusta)Vátryggingar(https://www.sff.is/vatryggingar) Menntun og fræðsla

Úrskurðanefndir(https://www.sff.is/urskurdanefndir)Kjaramál(https://www.sff.is/kjaramal)Erlent samstarf(https://www.sff.is/erlent-samstarf)Góð ráð gegn netsvikum(https://www.sff.is/frettir-og-greinar/god-rad-gegn-netsvikum)

Gagnlegar upplýsingar

Sjá allt(https://www.sff.is/gagnlegar-upplysingar)Tölulegar upplýsingar(https://www.sff.is/gagnlegar-upplysingar#tolulegar-upplysingar)Lög og réttarheimilidir(https://www.sff.is/gagnlegar-upplysingar#log-og-rettarheimildir)Peningaþvættisvarnir og skattaeftirlit(https://www.sff.is/gagnlegar-upplysingar#peningathvaetti)Taktu tvær: vörumst netglæpi(https://www.sff.is/gagnlegar-upplysingar#taktu-tvaer-gagn)Öryggi í fjármálaþjónustu(https://www.sff.is/gagnlegar-upplysingar#oryggi-i-fjarmalathjonustu)

Menntun og fræðsla undirsíður

Sjá allt(https://www.sff.is/menntun-og-fraedsla)Fjármálavit(https://www.sff.is/menntun-og-fraedsla#fjarmalavit-menntun)Tryggingaskólinn(https://www.sff.is/menntun-og-fraedsla#tryggingaskolinn)Vottun fjármálaráðgjafa(https://www.sff.is/menntun-og-fraedsla#vottun-fjarmalaradgjafa)

Um SFF

Um SFF(https://www.sff.is/um-sff)Stjórn(https://www.sff.is/stjorn)Starfsfólk(https://www.sff.is/starfsfolk)Fulltrúar í nefndum(https://www.sff.is/fulltruar-i-nefndum)

Aðildarfélög(https://www.sff.is/adildarfelog)Fjölmiðlar(https://www.sff.is/fjolmidlar)Stefnur og samþykktir SFF(https://www.sff.is/stefnur-og-samthykktir-sff)

Leitarniðustöður

En(https://www.sff.is/en)

En(https://www.sff.is/en)

Fréttir og greinar(https://www.sff.is/frettir-og-greinar)

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026

19.10.2026

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026 verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn 27. október undir yfirskriftinni Sérstaða Íslands. Fundurinn fer fram á Hótel Reykjavik Grand og stendur yfir frá kl. 13:00 - 15:15. Húsið opnar kl. 12:30. Hér(https://sa.is/starfsemin/vidburdir/umhverfisdagur-atvinnulifsins-2026) er hægt að skrá sig á viðburðinn.

Dagskrá

Opnunarávarp Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA

Pallborðsumræður Frá Íslandi til Brussel – sérstaða, hagsmunir og áhrif

Afhending Umhverfisverðlauna atvinnulífsins Þrjú fyrirtæki sem skara fram úr í tilnefningum verða heiðruð fyrir góðan árangur í umhverfismálum og Umhverfisfyrirtæki ársins 2026 verðlaunað á deginum.

Stutt kaffihlé

Málstofur – velja þarf málstofu við skráningu

1. Sérstaða íslenskra aðstæðna í ETS-kerfinu

ETS-kerfið er hluti af sameiginlegu evrópsku regluverki á sviði loftslagsmála. Á málstofunni verður fjallað um mikilvægi þess að áhrif og framkvæmd hins sameiginlega regluverks taki mið af íslenskum aðstæðum á borð við landfræðilega legu, fámenni og mikilvægi flugs og sjóflutninga. Sjónum verður beint að þeirri vinnu sem hefur farið fram við að koma sérstöðu Íslands á framfæri fyrir flug og sjóflutninga og tryggja að framkvæmd kerfisins taki mið af aðstæðum hér á landi og samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs. Jafnframt verður fjallað um mikilvægi áframhaldandi hagsmunagæslu og eftirfylgni, bæði við þróun regluverksins og framkvæmd þess hér á landi.

2. PPWR – innleiðing umbúðaregluverks ESB í íslensku samhengi

Ný reglugerð ESB um umbúðir og umbúðaúrgang (PPWR) mun hafa víðtæk áhrif á atvinnulíf í Evrópu. En eru áhrifin þau sömu á Íslandi? Á málstofunni verður fjallað um áhrif PPWR á íslenskt atvinnulíf, meðal annars smásölu, innflutning og útflutning, með sérstakri áherslu á þær áskoranir sem kunna að felast í sérstöðu Íslands. Einnig verður rætt hvernig íslenskum hagsmunum og sjónarmiðum hefur verið komið á framfæri við mótun regluverksins í Evrópu.

3. Íslensk sérstaða í orkumálum

Aðgengi að grænni og samkeppnishæfri orku hefur lengi verið ein af sérstöðum Íslands og skapað grundvöll fyrir orkusækinn iðnað. Nú eru miklar breytingar að verða á orku- og iðnaðarstefnu Evrópu sem geta haft áhrif á samkeppnisstöðu Íslands. Fjallað verður um þessa þróun og snert meðal annars á CBAM, breyttu orkuregluverki og aðgerðum ESB til að styrkja evrópskan iðnað.