Fréttir og útgáfa

Starfsemin

Um SFF

Fréttir og útgáfa

Fréttir og greinar(https://www.sff.is/frettir-og-greinar)Umsagnir(https://www.sff.is/umsagnir)Útgáfa(https://www.sff.is/utgafa)Viðburðir(https://www.sff.is/vidburdir)

Starfsemin

Gagnlegar upplýsingar

Fjármálaþjónusta(https://www.sff.is/fjarmalathjonusta)Vátryggingar(https://www.sff.is/vatryggingar) Menntun og fræðsla

Úrskurðanefndir(https://www.sff.is/urskurdanefndir)Kjaramál(https://www.sff.is/kjaramal)Erlent samstarf(https://www.sff.is/erlent-samstarf)Góð ráð gegn netsvikum(https://www.sff.is/frettir-og-greinar/god-rad-gegn-netsvikum)

Gagnlegar upplýsingar

Sjá allt(https://www.sff.is/gagnlegar-upplysingar)Tölulegar upplýsingar(https://www.sff.is/gagnlegar-upplysingar#tolulegar-upplysingar)Lög og réttarheimilidir(https://www.sff.is/gagnlegar-upplysingar#log-og-rettarheimildir)Peningaþvættisvarnir og skattaeftirlit(https://www.sff.is/gagnlegar-upplysingar#peningathvaetti)Taktu tvær: vörumst netglæpi(https://www.sff.is/gagnlegar-upplysingar#taktu-tvaer-gagn)Öryggi í fjármálaþjónustu(https://www.sff.is/gagnlegar-upplysingar#oryggi-i-fjarmalathjonustu)

Menntun og fræðsla undirsíður

Sjá allt(https://www.sff.is/menntun-og-fraedsla)Fjármálavit(https://www.sff.is/menntun-og-fraedsla#fjarmalavit-menntun)Tryggingaskólinn(https://www.sff.is/menntun-og-fraedsla#tryggingaskolinn)Vottun fjármálaráðgjafa(https://www.sff.is/menntun-og-fraedsla#vottun-fjarmalaradgjafa)

Um SFF

Um SFF(https://www.sff.is/um-sff)Stjórn(https://www.sff.is/stjorn)Starfsfólk(https://www.sff.is/starfsfolk)Fulltrúar í nefndum(https://www.sff.is/fulltruar-i-nefndum)

Aðildarfélög(https://www.sff.is/adildarfelog)Fjölmiðlar(https://www.sff.is/fjolmidlar)Stefnur og samþykktir SFF(https://www.sff.is/stefnur-og-samthykktir-sff)

Leitarniðustöður

En(https://www.sff.is/en)

En(https://www.sff.is/en)

Fréttir og greinar(https://www.sff.is/frettir-og-greinar)

Hollráð gegn svikum á netinu

Hollráð gegn svikum á netinu

7.11.2025

Fréttir

Það verður stöðugt erfiðara fyrir almenning á greina á milli þess hvort verið sé að reyna svíkja það eða ekki í hinum stafræna heimi. Sú staðreynd kallar einfaldlega á að fólk þarf að vera betur upplýst um allar þær leiðir og þau sálfræðilegu trikk sem svikarar reyna að beita til þess að hafa af þeim fé. Nú í nóvember fer í gang langstærsti netverslunarmánuður ársins og þá er gott að vera sérstaklega á varðbergi gagnvart svikum.

Hæfileg tortryggni og gagnrýnin hugsun eru öflug vopn gegn svikum

Það eru ekki mörg almenn atriði sem þarf að hafa í huga til þess að lágmarka líkur á fjárhagslegum skaða. Almenn tortryggni er ekki talin félagsleg dyggð en hún getur komið sér sérstaklega vel í hinum stafræna heimi. Gagnrýnin hugsun eins og vangaveltur um hvort að tilboð séu of góð til að vera sönn er einnig gott vopn í baráttunni. Ef þú ert í vafa leysir það mjög oft málið að hringja til þess að fá hlutina staðfesta. Það skiptir líka miklu máli að flýta sér hægt því oft verða slys í fljótfærni eða þegar fólk er að flýta sér. Sumir svikarar gera einfaldlega út á setja fólk í tímapressu því þá er líklegra að bitið verði á agnið. Þeir gera það t.d. með því að búa til sýndartilboð sem er að renna út eftir nokkrar mínútur eða biðja þig um greiðslu sem þarf að inna af hendi strax.

Nokkur almenn atriði til þess að lágmarka líkur á fjárhagslegum skaða

1. Það er mikilvægt að flýta sér mjög hægt þegar við erum að sýsla með stafrænum hætti um rafræn skilríki og persónulega upplýsingar eins og kortanúmer eða fjármuni.

2. Ef eitthvað er peningalega of gott til að vera satt er það yfirleitt ekki satt! Það að staldra aðeins við og beita gagnrýnni hugsun getur komið í veg fyrir að lenda í gildrum. Hafðu sérstakan vara á þér ef þér bjóðast fjármunir úr óþekktri átt eða mjög miklir afslættir á vörukaupum.

3. Ekki opna viðhengi, smella á hlekki eða hlaða niður hugbúnaði nema kanna hvort að sendingin komi frá traustum sendanda. Hér er oft hægt að nota sér umsagnarsíður á netinu fyrir svikahlekki. Hvað varðar svikahugbúnað þá getur verið erfiðara að greina slíkt og þá þarf að reiða sig meira á vírusvarnir. Best er að kanna áreiðanleika sendanda til að fullvissa þig um að svikarar séu ekki að baki. Það er oft hægt að gera með því að hringja og þá sérstaklega þegar um að ræða fyrirtæki eða stofnanir sem þú þekkir eða hefur áður átt viðskipti við.

4. Vertu alltaf á varðbergi gagnvart innskráningarbeiðnum með rafrænum skilríkjum. Rafrænuskilríkin þín eru ígildi peningaveskis og þú myndir ekki afhenda einhverjum ókunnugum peningaveski þitt. Ef þú ert að nota rafræn skilríki vertu vel meðvitaður um hvað þú ert að gera og að tölurnar í símanum stemmi við tölurnar á netinu. Gott er að hafa í huga að ef þú staðfestir eitthvað með rafrænum skilríkjum er færslan óafturkræf.

5. Aldrei gefa annarri manneskju upp notandanafn og lykilorð eða leyninúmer á reikningnum þínum.

6. Aldrei gefa upp kortaupplýsingar eins og kortanúmer, gildistíma og CVV númer á samfélagsmiðlum, í símtali, í tölvupósti eða gegnum SMS óháð því hvort þú treystir viðkomandi eða ekki. Það er á ábyrgð korthafa að varðveita sína persónubundnu öryggisþætti og ekki lána þá. Greiðslukortaupplýsingar skal einungis gefa upp á traustum greiðslusíðum og öruggri greiðslugátt. Stundum biðja seljendur eins og hótel eða bílaleigur um greiðslukort í síma eða á staðnum og þá ber að gæta ýtrustu varúðar við afhendingu slíkra upplýsinga. Í þeim tilfellum þar sem hringt er í þig biddu þá um að fá að hringja til baka til þess að vera viss um að vera tala við starfsmann fyrirtækisins.

7. Ef þú færð tölvupóst, SMS eða símtal frá einhverjum með greiðslufyrirmæli er æskilegt að hafa samband við viðkomandi einstakling, fyrirtæki eða stofnun með símtali til að athuga hvort að greiðslan eigi í raun rétt á sér. Láttu aldrei undan þrýstingi og sérstaklega ef þú ert beðinn um framkvæma eitthvað strax. Eðlilegar greiðslur eru mjög sjaldan þess eðlis að framkvæma þurfi þær strax.

Svikatilraunir í gegnum netverslun

Glæpamenn nota ýmsar leiðir til þess að stela peningum af fólki þegar það heldur að það sé að kaupa ósvikna vöru eða þjónustu á netinu. Svikahrappar nota t.d. vefsíðuafritunartó lsem afrita raunverulegar síður þannig að fórnarlambið telur sig vera á ósviknu heimasíðunni. Lén á svikasíðum eru aldrei nákvæmlega þau sömu en yfirleitt mjög lík ósviknu síðunni og geta þau t.d. endað á .shop eða annarri endingu en þessar hefðbundnu eins og .is og .com. Oft eru brotaþolar lokkaðir með auglýsingum á samfélagsmiðlum og síðan eru verðin yfirleitt mjög hagstæð og jákvæðar og falskar umsagnir um vöruna til að byggja upp traust. Ef svikahrappar fá fólk til að gefa upp kortanúmer þá geta þeir stolið umtalsverðum upphæðum af fólki, sérstaklega ef fólk áttar sig ekki fljótlega á því að það hefur verið svikið.