Fréttir og útgáfa
Starfsemin
Um SFF
Fréttir og útgáfa
Fréttir og greinar(https://www.sff.is/frettir-og-greinar)Umsagnir(https://www.sff.is/umsagnir)Útgáfa(https://www.sff.is/utgafa)Viðburðir(https://www.sff.is/vidburdir)
Starfsemin
Gagnlegar upplýsingar
Fjármálaþjónusta(https://www.sff.is/fjarmalathjonusta)Vátryggingar(https://www.sff.is/vatryggingar) Menntun og fræðsla
Úrskurðanefndir(https://www.sff.is/urskurdanefndir)Kjaramál(https://www.sff.is/kjaramal)Erlent samstarf(https://www.sff.is/erlent-samstarf)Góð ráð gegn netsvikum(https://www.sff.is/frettir-og-greinar/god-rad-gegn-netsvikum)
Gagnlegar upplýsingar
Sjá allt(https://www.sff.is/gagnlegar-upplysingar)Tölulegar upplýsingar(https://www.sff.is/gagnlegar-upplysingar#tolulegar-upplysingar)Lög og réttarheimilidir(https://www.sff.is/gagnlegar-upplysingar#log-og-rettarheimildir)Peningaþvættisvarnir og skattaeftirlit(https://www.sff.is/gagnlegar-upplysingar#peningathvaetti)Taktu tvær: vörumst netglæpi(https://www.sff.is/gagnlegar-upplysingar#taktu-tvaer-gagn)Öryggi í fjármálaþjónustu(https://www.sff.is/gagnlegar-upplysingar#oryggi-i-fjarmalathjonustu)
Menntun og fræðsla undirsíður
Sjá allt(https://www.sff.is/menntun-og-fraedsla)Fjármálavit(https://www.sff.is/menntun-og-fraedsla#fjarmalavit-menntun)Tryggingaskólinn(https://www.sff.is/menntun-og-fraedsla#tryggingaskolinn)Vottun fjármálaráðgjafa(https://www.sff.is/menntun-og-fraedsla#vottun-fjarmalaradgjafa)
Um SFF
Um SFF(https://www.sff.is/um-sff)Stjórn(https://www.sff.is/stjorn)Starfsfólk(https://www.sff.is/starfsfolk)Fulltrúar í nefndum(https://www.sff.is/fulltruar-i-nefndum)
Aðildarfélög(https://www.sff.is/adildarfelog)Fjölmiðlar(https://www.sff.is/fjolmidlar)Stefnur og samþykktir SFF(https://www.sff.is/stefnur-og-samthykktir-sff)
Leitarniðustöður
En(https://www.sff.is/en)
En(https://www.sff.is/en)
Fréttir og greinar(https://www.sff.is/frettir-og-greinar)
Hærri skattar, töpuð tækifæri? - Samantekt og upptökur
Hærri skattar, töpuð tækifæri? - Samantekt og upptökur
17.9.2026
Fréttir
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu stóðu þann 14. september síðastliðinn að fundi um boðaða skattahækkun stjórnvalda á fyrirtæki í fjármálageiranum og áhrif hennar á fjárfestingarumhverfi á Íslandi undir yfirskriftinni „Hærri skattar, töpuð tækifæri?“.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra fyrir árið 2027 stendur til að hækka sértækan skatt á skuldir fjármálafyrirtækja um u.þ.b. 75%, með það að markmiði að auka tekjur ríkisins af starfsemi fjármálafyrirtækja um sex milljarða. Heildarfjárhæð sértækra skatta á fjármálastarfsemi, umfram almenna skatta sem þau greiða, yrði því um 31 milljarður króna, miðað við skattgreiðslur ársins 2025.
Á fundinum fjallaði Lars Christensen , hagfræðingur og framkvæmdastjóri og stofnandi PAICE, um mikilvægi stöðugleika og fyrirsjáanleika í reglusetningu og skattlagningu. Í máli hans kom meðal annars fram að íslenskt atvinnulíf væri háð mörgum ytri áhættum á borð við náttúruvá og óróleika í alþjóðamálum . Hins vegar væru áhrifaþættir sem stjórnað væri hér á landi – að stjórnvöld væru fyrirsjáanleg þegar kæmir að reglusetningu og skattlagningu.
Þá fjallaði Reynir Stefán Gylfason , endurskoðandi og meðeigandi hjá KPMG, um sértæka skatta á banka í evrópskum samanburði. Greining KPMG leiðir meðal annars í ljós að sértæk skattlagning á íslensk fjármálafyrirtæki er um fimm sinnum hærri en að meðaltali í Vestur-Evrópu. Verði af boðaðri skattahækkun verður hún sjö sinnum hærri. Reynir benti einnig á að Ísland væri eitt ríkja Vestur-Evrópu sem legði í senn sértæka skatta á þrjá ólíka skattstofna, skuldir, laun og hagnað. Skattarnir væru því bæði mjög íþyngjandi og umfangsmiklir í alþjóðlegum samanburði og þá ætti upphafleg markmið skattheimtunnar illa við í dag. Þá passaði illa að hækka skatt varanlega sem væri óháður afkomunni með vísun til tímabundinn aðstæðna Tímabært væri að taka þessa umgjörð til heildarendurskoðunar.
Í fyrri pallborðsumræðum fundarins ræddi Ingvar Haraldsson , greininga- og samskiptastjóri SFF, við Ellert Arnarson , fjármálastjóra Amaroq Minerals, Iðu Brá Benediktsdóttur , aðstoðarbankastjóra Arion banka, og Tönyu Zharov , lögfræðing og stjórnarmann, um íslenskt fjárfestingarumhverfi og hvaða gera megi til að styrkja það. Þá barst talið einnig að mögulegum áhrifum skattahækkunarinnar á slíkt fjármögnunarumhverfi íslenskra fyrirtækja.
Dr. Lev Ratnovski , hagfræðingur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, flutti því næst erindi um reynslu Evrópusambandsríkja af sértækri skattlagningu á fjármálafyrirtæki og hvað þyrfti að hafa í huga við greiningu á áhrifum og hönnun slíkra skatta. Þar kom meðal annars fram að slík sértæk skattlagning gæti verið varhugaverð þar sem hún gæti dregið úr samkeppnishæfni innlendra banka, með þeim afleiðingum að viðskiptavinir þeirra færðu sig erlendis í auknum mæli. Ratnovski nefndi nokkur dæmi þar sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefði hvatt stjórnvöld til að endurskoða sértæka skattlagningu á banka vegna neikvæðra efnahagsáhrifa þeirra.
Dr. Gunnar Haraldsson , hagfræðingur og stofnandi Intellecon, fjallaði um möguleg áhrif fyrirhugaðrar skattahækkunar á íslenskt hagkerfi og efnahagslíf.