Skip to content
Hjálparsíma Píeta opinn 24/7
(+354) 1799
0 kr.
0 Cart
Styrkja(https://pieta.is/styrkja-samtokin/)
0 kr.
0 Cart
Styrkja(https://pieta.is/styrkja-samtokin/)
EmpowerYOUth – skólaverkefni
Píeta samtökin eru leiðandi í glæsilegu Evrópusamstarfsverkefni í nánu samstarfsi við Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ, NorthConcusting, Centro Sviluppo Creativo Danilo Dolci á Ítalíu og National Management School í Búlgaríu. Verkefnið er styrkt af Erasmus+ og miðar að því að aðlaga námsefni um sjálfsvígsforvarnir að íslenskum, ítölskum og Búlgörskum háttum.
EmpowerYOUth verkefnið gengur út á að styrkja frístundarleiðbeinendur og námsráðgjafa í skólum í að styðja við seiglu ungmenna og er ætlað sem kennsluefni í lífsleiknitímum. Þetta námsefni er öðruvísi að því leitinu til að það var hannað með aðstoð nemenda. Spurningakannanir voru lagðar fyrir nemendur og nemendur úr fókushópum voru spurðir hvað það er sem er að trufla þá einna mest. Allt námsefnið var hannað út frá þeirra svörum.