Skip to content
Hjálparsíma Píeta opinn 24/7
(+354) 1799
0 kr.
0 Cart
Styrkja(https://pieta.is/styrkja-samtokin/)
0 kr.
0 Cart
Styrkja(https://pieta.is/styrkja-samtokin/)
Ertu með sjálfsvígshugsanir?
Sjálfsvígshugsanir
Ertu með sjálfsvígshugsanir? Upplifir þú einmanaleika eða ótta? Áttu erfitt með að segja frá líðan þinni og hugsunum? Fyrsta skrefið er að hringja í okkur hjá Píeta í síma 1799.
Margir upplifa sjálfsvígshugsanir og það hjálpar að tala um þær. Sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaði eru ekki merki um veikleika heldur mikla vanlíðan og sársauka.
Ef þú fótbrotnar hikar þú ekki við að leita þér aðstoðar. Þú færð þá meðferð sem þú þarft til að jafna þig og láta brotið gróa. Það sama á við um tilfinningalega vanlíðan. Segðu fjölskyldu eða vini frá því hvernig þér líður. Þau geta aðstoðað þig við að hafa samband við okkur ef þú treystir þér ekki til þess.
Hvað gerist þegar þú hefur samband við okkur?