Skip to content

Hjálparsíma Píeta opinn 24/7

(+354) 1799

0 kr.

0 Cart

Styrkja(https://pieta.is/styrkja-samtokin/)

0 kr.

0 Cart

Styrkja(https://pieta.is/styrkja-samtokin/)

Vísbendingar um sjálfsvígshættu

Hvers vegna fær fólk sjálfsvígshugsanir?”

Það er engin ein ástæða fyrir því að fólk tekur lífið sitt. Oftast gerist það í samspili á milli ýmissa álagsþátta og geðræns vanda sem veldur upplifun af vonleysi og örvæntingu. Þunglyndi er sú geðröskun sem oftast er tengd við sjálfsvíg. Áföll, kvíði og vímuefnavandi, sem ekki er unnið með eru einnig áhættuþættir fyrir sjálfsvíg. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að með því að sækja sér hjálp og vinna í sínum málum þá er alltaf von á bata.

Breytingar á hegðun

Algengar vísbendingar um sjálfsvígshættu eru breytingar á hegðun og á líðan.

- Að gefa frá sér eigur sínar eða ganga frá fjármálum