Landsbankinn(https://www.landsbankinn.is/) Leit(https://www.landsbankinn.is/leit) Netbankar
Vefkökur
Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu. Nánar um vefkökur(https://www.landsbankinn.is/bankinn/um-bankann/personuvernd)
Nauðsynlegar vefkökur
Tryggja virkni vefsins
Hagnýtar vefkökur
Greina notkun svo við getum mælt og aukið gæði vefsins
Vefkökur til markaðssetningar
Notaðar til að birta persónubundnar auglýsingar
Nánar um vefkökur(https://www.landsbankinn.is/bankinn/um-bankann/personuvernd)
Velja vefkökur Leyfa allar
Fréttir(https://www.landsbankinn.is/frettir) Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.
Í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. („félagið“) og umsókn um töku allra hluta þess til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland, hefur félagið birt lýsingu sem dagsett er 5. nóvember 2026, sem samanstendur af samantekt, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu.
6. nóvember 2026
Deila grein á Facebook Deila grein á Twitter Senda grein með tölvupósti
Bláa Lónið hf. er íslenskt hlutafélag sem sinnir rekstri, þróun og markaðssetningu á heilsu- og vellíðunarþjónustu. Félagið sérhæfir sig í rekstri áfangastaða á heimsmælikvarða sem byggja á hönnun, gæðum, einstökum eiginleikum íslenskrar náttúru og áratuga reynslu. Þar á meðal er Bláa Lónið, eitt þekktasta baðlón heimsins, the Retreat, Silica Hotel og Highland Base Kerlingarfjöll, baðlón Fontana við Laugarvatn og Blue Lagoon Skin Science, alþjóðlegt húðvörumerki sem byggir á áratuga rannsóknum og einstökum innihaldsefnum úr jarðsjó Bláa Lónsins. Bláa Lónið hf. hefur einnig gert samning um kaup á öllu hlutafé í Arctic Adventures hf., sem er leiðandi upplifunar- og ævintýraferðaþjónustufyrirtæki. Allir fyrirvarar vegna kaupanna hafa verið uppfylltir og verður félagið því hluti af samstæðunni fyrir lok nóvember. Bláa Lónið hf. vinnur einnig að umfangsmikilli uppbyggingu í Þjórsárdal, þar sem Fjallaböðin, Mountain Retreat og Gestastofa munu rísa, auk þróunar nýs baðlóns og hótels á Hoffelli. Bláa Lónið hf. á jafnframt hluti í völdum áfangastöðum víða um land: Jarðböðunum við Mývatn, Vök á Egilsstöðum og Sjóböðunum á Húsavík.
Helstu skilmálar útboðsins
Tekið verður við áskriftum á vef Landsbankans(https://www.landsbankinn.is/blaalonid), frá kl. 10.00 þriðjudaginn 10. nóvember 2026 til kl. 16.00 föstudaginn 13. nóvember 2026.
Hver áskrift í almenna útboðinu skal vera frá 100.000 kr. til 20.000.000 kr. í áskriftarbók A og yfir 20.000.000 kr. í áskriftarbók B.
Fjárfestar geta breytt eða afturkallað áskrift sína á útboðstímabilinu.
Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins verði birtar eigi síðar en 16. nóvember 2026.
Gjalddagi og eindagi greiðsluseðla vegna útboðsins er 18. nóvember 2026.
Áætlað er að hlutabréf félagsins verði afhent kaupendum eigi síðar en 20. nóvember 2026.
Áætlað er að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann 20. nóvember 2026.
Áskriftarbók A Áskriftarbók B
Stærð áskrifta Áskriftir frá 100.000 kr. – 20.000.000 kr. Áskriftir yfir 20.000.000 kr.
Útboðsgengi Fast verð 95 kr. á hlut. Tilboð skulu gerð á eða yfir lágmarksverði 95 kr. á hlut. Salan fer fram á föstu verði, sem ákvarðast jafnt og það lægsta af samþykktum tilboðum.
Stærð útboðs Til sölu verða 45.000.000 hlutir (30% af stærð útboðsins). Til sölu verða 105.000.000 hlutir (70% af stærð útboðsins).
Úthlutun vegna umframeftirspurnar Áskriftir í áskriftarbók A verða skertar hlutfallslega, þó þannig að leitast verður við að skerða ekki áskriftir undir 1.000.000 kr. og flötum niðurskurði beitt á hæstu áskriftir ef það dugar ekki til. Áskriftir starfsmanna Bláa Lónsins í útboðinu verða ekki skertar undir 5.000.000 kr. Áskriftir sem eru á eða yfir útboðsgengi áskriftarbókar B verða samþykktar, þó þannig að ef umframeftirspurn verður í þessum hluta útboðsins verða áskriftir skertar. Við skerðingu í áskriftarbók B verða áskriftir metnar á grundvelli verðs. Þannig verður leitast við að skerða ekki áskriftir sem eru yfir útboðsgengi áskriftarbókar B en þær áskriftir sem eru á útboðsgengi áskriftarbókar B verða skertar hlutfallslega með tilliti til fjárhæðar áskrifta á því gengi. Öll samþykkt tilboð verða samþykkt á sama gengi: Útboðsgengi áskriftarbókar B.
Bláa Lónið hf. býður til opins kynningarfundar í tengslum við almennt hlutafjárútboð félagsins. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 10. nóvember í Hörpu. Beint vefstreymi verður aðgengilegt á vefsíðu Landsbankans og á vefsíðu Bláa Lónsins.
Landsbankinn hf. og Fossar fjárfestingarbanki hf. hafa umsjón með útboðinu.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um Bláa Lónið hf., hlutabréf félagsins og skilmála útboðsins má finna í lýsingu félagsins, sem dagsett er 5.