Landsbankinn(https://www.landsbankinn.is/) Leit(https://www.landsbankinn.is/leit) Netbankar

Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu. Nánar um vefkökur(https://www.landsbankinn.is/bankinn/um-bankann/personuvernd)

Nauðsynlegar vefkökur

Tryggja virkni vefsins

Hagnýtar vefkökur

Greina notkun svo við getum mælt og aukið gæði vefsins

Vefkökur til markaðssetningar

Notaðar til að birta persónubundnar auglýsingar

Nánar um vefkökur(https://www.landsbankinn.is/bankinn/um-bankann/personuvernd)

Velja vefkökur Leyfa allar

Umræðan(https://www.landsbankinn.is/umraedan) Póstlistar(https://www.landsbankinn.is/postlistar)

Umræðan(https://www.landsbankinn.is/umraedan)

Samfélagið(https://www.landsbankinn.is/umraedan/samfelagid)

Efnahagsmál(https://www.landsbankinn.is/umraedan/efnahagsmal)

Netöryggi(https://www.landsbankinn.is/umraedan/netoryggi)

Fræðsla(https://www.landsbankinn.is/umraedan/fraedsla)

Hlaðvarp(https://www.landsbankinn.is/umraedan/hladvarp)

Hagspá til 2029: Hæg­ur vöxt­ur en batn­andi horf­ur

Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.

19. október 2026

Deila grein á Facebook Deila grein á Twitter Senda grein með tölvupósti

Margt bendir þó til þess að undirliggjandi verðbólguþrýstingur sé smám saman að gefa eftir og gangi spá okkar eftir fara vextir að lækka eftir áramót.

Minni óvissa innanlands vekur von

Á síðustu vikum hefur dregið úr óvissu innanlands og að mörgu leyti má líta framtíðina björtum augum. Við teljum að vaxtahækkunarferlinu sé lokið og óvissa um framhald kjarasamninga hefur minnkað. Horfur hafa því batnað og við teljum líklegt að vaxtalækkanir geti hafist snemma á næsta ári. Það þýðir þó ekki að veturinn verði léttur. Við spáum því að atvinnuleysi aukist enn yfir veturinn, en taki síðan smám saman að minnka á næsta ári. Fasteignamarkaðurinn verður áfram rólegur og vöxtur einkaneyslu hægari. Óvissa um alþjóðlega þróun, ekki síst olíuverð, er áfram mikil.

Við spáum því að hagvöxtur verði 1,3% í ár og 1,5% á næsta ári. Þetta er afar hófstilltur vöxtur í sögulegu samhengi. Hann verður borinn uppi af fjölbreyttum útflutningi, en álútflutningur nær sér á strik ásamt því sem við gerum ráð fyrir vexti í ferðaþjónustu og að fjölbreyttir vaxtarsprotar halda áfram að blómstra. Við spáum samdrætti í íbúðafjárfestingu næstu ár og afar hófstilltum verðhækkunum á íbúðamarkaði. Það má þó gera ráð fyrir áframhaldandi framgangi ýmissa stærri fjárfestingaráforma, til að mynda tengt orkuöflun og gagnaverum.

Toppi verðbólgunnar náð

Verðbólga hefur verið yfir 5% allt þetta ár, en við spáum því að hámarki hafi verið náð með 5,9% verðbólgu nú á haustmánuðum. Verðbólga verður þó tregbreytanleg næstu mánuði, en gangi spá okkar eftir ætti hún að vera komin undir 5% á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Aðstæður innanlands styðja þessa þróun, en slaki hefur myndast bæði á vinnumarkaði og húsnæðismarkaði. Sátt náðist á vinnumarkaði með þeim afleiðingum að gildandi kjarasamningar halda og ríkið ætlar að halda aftur af gjaldahækkunum.

Við gerum ráð fyrir því að peningastefnunefnd geti hafið vaxtalækkunarferlið í febrúar og mun vaxtastigið fylgja verðbólgunni niður. Raunvextir verða nokkuð stöðugir allt spátímabilið, fara hæst í ríflega 3% en verða almennt á bilinu 2-3% á meðan verðbólga lækkar í átt að markmiði.

Helstu atriði hagspár til 2029

Hagvöxtur verður 1,3% í ár, 1,5% á næsta ári og 2% árið 2028. Vöxturinn á næsta ári verður borinn uppi af auknum krafti útflutningsgreinanna. Álútflutningur nær sér á strik, ásamt því sem fjölbreyttir vaxtarsprotar á borð við gagnaver, lyf og fiskeldi færa okkur aukinn vöxt.