Landsbankinn(https://www.landsbankinn.is/) Leit(https://www.landsbankinn.is/leit) Netbankar

Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu. Nánar um vefkökur(https://www.landsbankinn.is/bankinn/um-bankann/personuvernd)

Nauðsynlegar vefkökur

Tryggja virkni vefsins

Hagnýtar vefkökur

Greina notkun svo við getum mælt og aukið gæði vefsins

Vefkökur til markaðssetningar

Notaðar til að birta persónubundnar auglýsingar

Nánar um vefkökur(https://www.landsbankinn.is/bankinn/um-bankann/personuvernd)

Velja vefkökur Leyfa allar

Umræðan(https://www.landsbankinn.is/umraedan) Póstlistar(https://www.landsbankinn.is/postlistar)

Umræðan(https://www.landsbankinn.is/umraedan)

Samfélagið(https://www.landsbankinn.is/umraedan/samfelagid)

Efnahagsmál(https://www.landsbankinn.is/umraedan/efnahagsmal)

Netöryggi(https://www.landsbankinn.is/umraedan/netoryggi)

Fræðsla(https://www.landsbankinn.is/umraedan/fraedsla)

Hlaðvarp(https://www.landsbankinn.is/umraedan/hladvarp)

Vinnu­mark­að­ur kóln­ar og það hæg­ir á launa­hækk­un­um

Eftirspurn eftir vinnuafli hefur minnkað, atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar. Kólnun í hagkerfinu hefur dregið úr hækkunartakti launa og í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir hóflegri launahækkunum næstu árin. Þrátt fyrir það teljum við að kaupmáttur aukist áfram, samhliða minni verðbólgu og meiri uppgangi í atvinnulífinu á síðari hluta spátímans.

5. nóvember 2026

Deila grein á Facebook Deila grein á Twitter Senda grein með tölvupósti

Störfum á almenna markaðnum hefur fækkað á meðan störfum hjá hinu opinbera hefur fjölgað síðustu misseri. Samkvæmt nýjustu gögnum Hagstofunnar um fjölda starfandi, fjölgaði störfum í opinberri þjónustu um 2,9% í september frá sama tíma í fyrra, en störfum á almenna markaðnum fækkaði um 1,3% á sama tímabili.

Þegar litið er á einstakar greinar sést að fækkunin er einna mest í greinum tengdum ferðaþjónustu, þar sem störfuðu 1,5% færri nú í september en á sama tíma í fyrra. Einnig má sjá samdrátt í sjávarútvegi og byggingarstarfsemi. En á sama tíma starfa 2% fleiri við opinbera þjónustu en í september í fyrra. Boðaðar aðhaldsaðgerðir ríkisins fela meðal annars í sér að stöðugildum verði fækkað um 1% á næsta ári, að öðru óbreyttu ætti það að leiða til færri starfa í opinberri þjónustu.

Skýr merki um kólnandi vinnumarkað

Það sem af er ári hefur atvinnuleysi mælst 0,5-0,7 prósentustigum hærra en á sama tíma í fyrra samkvæmt skráðu atvinnuleysi Vinnumálastofnunar. Í nýlegri hagspá(https://www.landsbankinn.is/umraedan/efnahagsmal/hagspa-til-2029-haegur-voxtur-en-batnandi-horfur) gerum við ráð fyrir að sú þróun haldi áfram næstu misseri og að atvinnuleysi nái hápunkti í vetur og mælist um 5%. Við gerum ráð fyrir að vextir lækki á næsta ári, samhliða hjöðnun verðbólgu, og í kjölfarið styrkist vinnumarkaðurinn eftir því sem atvinnulífið tekur smám saman við sér.

Í september birti Seðlabankinn niðurstöður úr ársfjórðungslegri könnun Gallup á meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja. Á þriðja ársfjórðungi þessa árs töldu einungis 14% fyrirtækja vera skort á starfsfólki og 86% fyrirtækja töldu nægt framboð til staðar. Hlutfallið hefur ekki verið svo hátt síðan á tímum faraldursins og er því skýrt merki um breyttan vinnumarkað síðustu misseri.

Spáum minnkandi launahækkunum, en áframhaldandi kaupmáttaraukningu

Undanfarið hefur dregið úr hækkunartakti launa eftir ríflegar launahækkanir síðustu ár. Í október náðist samkomulag á vinnumarkaði sem felur í sér að gildandi kjarasamningar á almennum vinnumarkaði halda. Við gerum ráð fyrir að laun fylgi þeim samningum og að launaskrið verði lítið á meðan atvinnuleysi mælist hátt og hægagangur ríkir í hagkerfinu. Launavísitalan hækkaði um 7,9% á síðasta ári. Það sem af er ári hefur vísitalan hækkað töluvert minna og í september var tólf mánaða hækkun hennar 5,6%.

Í hagspánni(https://www.landsbankinn.is/umraedan/efnahagsmal/hagspa-til-2029-haegur-voxtur-en-batnandi-horfur) gerum við ráð fyrir nokkuð hóflegum launahækkunum næstu árin. Launavísitalan hefur að meðaltali hækkað um rúm 7% á hverju ári frá aldamótum. Við gerum ráð fyrir 5,8% hækkun í ár, 5,1% á næsta ári og 5,6% hækkun síðustu tvö ár spátímans.

Háir vextir, aukið atvinnuleysi og hægari kaupmáttarvöxtur hafa dregið úr neysluvilja og neyslugetu heimila. Gangi spá okkar eftir mun kaupmáttur aukast um 0,3% í ár og 0,8% á næsta ári. Við gerum ráð fyrir meiri kaupmáttaraukningu síðustu tvö ár spátímans, samhliða hjöðnun verðbólgu og auknum umsvifum í hagkerfinu. Horfur eru því á að vöxtur innlendrar eftirspurnar verði áfram hægur á næstunni. Kólnun hagkerfisins og slakari vinnumarkaður ættu þó að skapa svigrúm fyrir peningastefnunefnd Seðlabankans að hefja vaxtalækkanir snemma á næsta ári, þótt töluverð óvissa ríki um tímasetninguna.

Fyrirvari Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf.