Fara á efnissvæði

HS Orka(https://www.hsorka.is/)

En(https://www.hsorka.is/en/)

Mínar síður(https://www.hsorka.is/minar-sidur/) Komdu í viðskipti(https://www.hsorka.is/hafdu-samband/komdu-i-vidskipti/)

Leiðsöguhnappur

Kveiktu á spjalli

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Algengar spurningar(https://www.hsorka.is/algengar-spurningar/)

Hafa samband(https://www.hsorka.is/hafdu-samband/)

520 9300

Rannsóknasjóður HS Orku

Rannsóknasjóður HS Orku veitir styrki til afmarkaðra rannsóknarverkefna sem hafa skírskotun til starfsemi fyrirtækisins og/eða til sjálfbærniáherslna HS Orku(https://www.hsorka.is/um-okkur/skilmalar-og-stefnur/sjalfbaernistefna/). Markmið sjóðsins er að efla þekkingu innan fyrirtækisins og stuðla að framförum og nýsköpun í starfseminni.

Næsta úthlutun fer fram vorið 2027. Opið verður fyrir umsóknir frá 15. janúar til 15. febrúar 2027.

Úthlutunarviðmið

Þau verkefni sem Rannsóknasjóðurinn styður geta verið á efri stigum háskólanáms, þ.e. meistara- eða doktorsstigi, samstarfsverkefni við þekkingarstofnanir (s.s. háskóla, háskólasetur, náttúrufræðistofur og aðrar stofnanir) eða aðra aðila; einstaklinga, hópa, smærri fyrirtæki, sjálfseignarstofnanir eða félagasamtök. Verkefni geta ýmist verið að frumkvæði HS Orku eða utanaðkomandi aðila.

Fagráð Rannsóknasjóðsins metur umsóknir jafnt frá innlendum sem erlendum aðilum. Verkefnin geta snúið sérstaklega að íslenskum málefnum og aðstæðum, haft tengingu við staðbundna starfsemi HS Orku eða haft þekkingarfræðilegt gildi óháð landssvæði.