Fara á efnissvæði

HS Orka(https://www.hsorka.is/)

En(https://www.hsorka.is/en/)

Mínar síður(https://www.hsorka.is/minar-sidur/) Komdu í viðskipti(https://www.hsorka.is/hafdu-samband/komdu-i-vidskipti/)

Leiðsöguhnappur

Kveiktu á spjalli

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Algengar spurningar(https://www.hsorka.is/algengar-spurningar/)

Hafa samband(https://www.hsorka.is/hafdu-samband/)

520 9300

Hvalárvirkjun og önnur verkefni VesturVerks

55

MWe

Uppsett afl

320

GWh

Ársframleiðsla

VesturVerk, sem er í meirihlutaeign HS Orku, hefur um árabil unnið að undirbúningi Hvalárvirkjunar sem nýta mun rennsli ánna Hvalár, Rjúkanda og Eyvindarfjarðarár í Árneshreppi á Ströndum til orkuöflunar. Miðað við núverandi hönnun er gert ráð fyrir að afl virkjunarinnar verði 55 MW og orkuframleiðsla um 320 GWh á ári.

Hvalárvirkjun er vatnsaflsvirkjun í nýtingarflokki rammaáætlunar með áætlaða afkastagetu upp á 55 MW. Virkjunin er á jarðfræðilega köldu svæði og mun hún stuðla að auknu afhendingaröryggi raforku, jafnt á Vestfjörðum sem á landsvísu. Eitt af markmiðum VesturVerks er að virkjunin muni stuðla að auknu afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum, sem er sá landshluti þar sem öryggi í afhendingu raforku er minnst og truflanir á raforkuafhendingu tíðastar.