Fara á efnissvæði

HS Orka(https://www.hsorka.is/)

En(https://www.hsorka.is/en/)

Mínar síður(https://www.hsorka.is/minar-sidur/) Komdu í viðskipti(https://www.hsorka.is/hafdu-samband/komdu-i-vidskipti/)

Leiðsöguhnappur

Kveiktu á spjalli

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Algengar spurningar(https://www.hsorka.is/algengar-spurningar/)

Hafa samband(https://www.hsorka.is/hafdu-samband/)

520 9300

Samfélagssjóður HS Orku

Næsta styrkveiting og umsóknarfrestur

Samfélagssjóður HS Orku hefur það að markmiði að styðja við samfélagslega jákvæð verkefni einstaklinga eða hópa. Næsta úthlutun fer fram haustið 2026 og er opið fyrir umsóknir frá 1-30. september.

Fram til þessa hafa úthlutanir úr Samfélagssjóðnum verið tvær á ári, vor og haust. Nú er er sú breytingin gerð að úthlutað verður einu sinni á ári, að hausti, en árleg styrkupphæð helst óbreytt. Með breytingunni skapast aukið svigrúm til að styðja betur við einstök verkefni sem falla vel að úthlutunarviðmiðum sjóðsins.

Hvernig verkefni styður sjóðurinn?

Verkefni sem hafa jákvæð áhrif á íslenskt samfélag, lífsgæði og mannlíf. Tekið er á móti umsóknum um styrki frá öllum landshlutum en sérstök áhersla er lögð á að styðja verkefni í nágrannabyggðum starfsstöðva fyrirtækisins. Við val á verkefnum er m.a. litið til þeirra heimsmarkmiða um sjálfbæra þróun sem HS Orka hefur innleitt:

Umsóknir skal senda rafrænt gegnum umsóknarsíðu sjóðsins á heimasíðu. Samfélagsráð HS Orku fer yfir umsóknir og tilkynnir styrkveitingar.