Ef þú átt í vandræðum með að ná sambandi við 112, smelltu þá á netspjall eða hringdu í 599-0112. Aðrar leiðir til að ná sambandi(https://www.112.is/mikilvaegar-upplysingar-vardandi-simtol-i-112)
Beint í efni
Valmynd
Ofbeldi(https://www.112.is/ofbeldi)
Kynferðisofbeldi og áreitni
Kynferðisofbeldi og áreitni
Kynferðisofbeldi er það þegar einhver gerir eitthvað kynferðislegt við þig eða fær þig til að gera eitthvað kynferðislegt sem þú vilt ekki gera. Kynferðisleg áreitni í orðum eða hegðun er líka ofbeldi.
Byrlun
Byrlun er þegar einhver gefur annarri manneskju lyf, áfengi eða vímuefni án þess að manneskjan viti af því eða samþykki það.
Lesa meira(https://www.112.is/ofbeldi/byrlun)
Kynferðisleg áreitni
Þegar farið er yfir mörk á kynferðislegan hátt er það kynferðisleg áreitni.
Lesa meira(https://www.112.is/ofbeldi/kynferdisleg-areitni)
Kynferðisofbeldi
Kynferðisofbeldi er það þegar einhver fær þig til að gera eitthvað kynferðislegt sem þú vilt ekki gera. Eins og ef einhver káfar á þér eða áreitir þig á kynferðislegan hátt.
Lesa meira(https://www.112.is/ofbeldi/kynferdis-ofbeldi)
Nauðgun
Enginn hefur rétt á að þvinga aðra manneskju til að gera eitthvað kynferðislegt sem hún vill ekki gera. Þegar kynmök eru höfð við manneskju án samþykkis er það nauðgun.
Lesa meira(https://www.112.is/ofbeldi/naudgun)
Nektarmyndirefni og stafrænt kynferðisofbeldi
Það er stafrænt kynferðisofbeldi þegar einhver tekur eða deilir kynferðislegri efni af þér án leyfis. Það er líka ólöglegt að hóta að deila kynferðislegu efni eða senda það án samþykkis móttakanda.
Lesa meira(https://www.112.is/ofbeldi/nektarmyndir)
Vændi
Vændi er þegar einhver borgar öðrum fyrir að fullnægja sínum kynferðislegu hvötum. Greiðslan þarf ekki alltaf að vera með peningum, hún getur líka verið greiði eða gjöf.
Lesa meira(https://www.112.is/ofbeldi/vaendi)
Tæling
Þegar eldri manneskja tælir ungling eða viðkvæma manneskju til kynferðislegra athafna með blekkingu eða gjöfum kallast það tæling. Tæling er ofbeldi og er ólögleg.
Lesa meira(https://www.112.is/ofbeldi/taeling)
Samþykki
Að gefa samþykki af frjálsum vilja er nauðsynlegt í kynlífi og kynferðislegum athöfnum. Annað er kynferðislegt ofbeldi.
Lesa meira(https://www.112.is/samthykki)
Kynlífskúgun (sextortion)
Kynlífskúgun, stundum kallað sæmdarkúgun, er þegar einhver vill að þú gerir eitthvað fyrir sig og hótar að sýna öðrum eitthvað sem þú vilt ekki að aðrir sjái ef hann fær ekki það sem hann vill.
Lesa meira(https://www.112.is/ofbeldi/kynlifskugun-sextortion)
Leiðarvísar um réttarkerfið fyrir þolendur kynferðisofbeldis