Ef þú átt í vandræðum með að ná sambandi við 112, smelltu þá á netspjall eða hringdu í 599-0112. Aðrar leiðir til að ná sambandi(https://www.112.is/mikilvaegar-upplysingar-vardandi-simtol-i-112)

Beint í efni

Valmynd

Mikilvægar upplýsingar varðandi símtöl í 112

Það er mikilvægt að öll geti náð sambandi við neyðarþjónustu þegar þörf krefur. Þess vegna leggur Neyðarlínan áherslu á að hafa margar leiðir til að ná sambandi.

Efnisyfirlit

Aðrar leiðir til að hafa samband Aðrar leiðir til að hafa samband

Hvað gerðist? Hvað gerðist?

Hvernig getur þú hjálpað? Hvernig getur þú hjálpað?

Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar

Annað neyðarnúmer - Vistið þetta númer til að hafa sem varaleið

Ef ekki tekst að tengjast 112 , eða ef símtalið einkennist af slæmum hljóðgæðum eða rofnar, er hægt að hringja í 599-0112

Athugið að símtöl í þetta númer eru meðhöndluð eins og venjuleg símtöl. Þau njóta ekki sama forgangs og neyðarsímtöl í 112 og senda ekki sjálfkrafa upplýsingar um staðsetningu.

Reynið alltaf fyrst að hringja í 112. Notið varanúmerið aðeins ef ekki tekst að tengjast 112 eða ef gæði símtalsins gera samskipti ómöguleg.

Aðrar leiðir - 112 app / Netspjall / SMS

Þá mælir 112 með því að nota 112-appið eða netspjallið(https://www.112.is/spjall) á vefsíðunni til að hafa samband við 112 ef þarf. Þessar leiðir gera kleift að senda myndir og staðsetningarupplýsingar og auðvelda þýðingu ef þörf krefur.

Hægt er að sækja appið af vefsíðunni okkar(https://www.112.is/en/112-appid) , eða í viðeigandi smáforritaverslun.

Einnig er hægt að senda SMS-skilaboð í 112, en notkunarmöguleikar þeirra eru takmarkaðri.

Hvað gerðist?

Ísland varð nýlega fyrsta landið í Evrópu til að ljúka við að leggja niður eldri farsímakerfi (2G og 3G)(https://www.112.is/3g-lokar-um-allt-land) á landsvísu og reiðir sig nú alfarið á 4G- og 5G-innviði.

Vegna þessara breytinga gætu sumir farsímar átt í erfiðleikum með að tengjast neyðarnúmerinu 112 . Þetta á sérstaklega við um eldri gerðir og suma síma sem keyptir hafa verið erlendis .