Ef þú átt í vandræðum með að ná sambandi við 112, smelltu þá á netspjall eða hringdu í 599-0112. Aðrar leiðir til að ná sambandi(https://www.112.is/mikilvaegar-upplysingar-vardandi-simtol-i-112)

Beint í efni

Valmynd

112 Neyðarlínu appið

112 Neyðarlínu appið getur flýtt fyrir upplýsingagjöf þegar beðið er um aðstoð. Appið hentar öllum sem eiga erfitt með að hringja eða lýsa vettvangi, svo sem vegna aðstæðna eða erfiðleika við tjáningu.

112 Neyðarlínu smáforrit

Með 112 appinu er hægt að hafa samband við 112 án þess að hringja. Skýrar valmyndir hjálpa fólki að greina frá því sem er að gerast, síðan er opnað fyrir textasamskipti við neyðarvörð. Um leið og samband er gefið til neyðarvarðar er staðsetning vettvangs send til Neyðarlínunnar ásamt upplýsingum um þann sem hringir og lýsingu á því á hvað er að gerast.