16. október 2026(https://samorka.is/rammaaaetlun-tvaer-tillogur-tvenns-konar-vinnubrogd/)

Rammaáætlun: Tvær tillögur -tvenns konar vinnubrögð

Verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar hefur lagt fram tvær tillögur sem nú eru opnar til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda. Önnur varðar átta verndarsvæði og tilheyrandi virkjunarhugmyndir sem lagt er til að fari í verndarflokk. Hin varðar flokkun sjö vindorkuhugmynda. Samorka telur ástæðu til að gera athugasemdir við báðar tillögur, en ekki síður við það ósamræmi sem birtist í vinnubrögðum sömu verkefnisstjórnar.

Verndartillagan byggir alfarið á mati frá 2011

Tillagan um verndarflokk er lögð fram í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli nr. 36/2023. Svæðin átta eru Jökulsá á Fjöllum, Geysir, Kerlingarfjöll, Brennisteinsfjöll, Gjástykki, Hólmsá, Jökulfall og Hvítá og Tungnaá. Kostirnir voru ekki metnir að nýju. Tillagan byggir á niðurstöðum faghópa og verkefnisstjórnar í 2. áfanga rammaáætlunar, sem lauk árið 2011.

Faghópur 1 kemst að þeirri niðurstöðu að ekki sé þörf á að endurtaka fyrra mat. Breytingar á lagaumhverfi teljist ekki forsendubreytingar að mati faghópsins. Faghópur 4 fór yfir niðurstöður 2. áfanga og breytti ekki hagkvæmniflokkun kostanna, án þess að gera grein fyrir nýju mati á orkugetu, kostnaði eða arðsemi.

Síðan 2011 hefur lagaumgjörð rammaáætlunar þó breyst verulega. Markmið laga nr. 48/2011 tekur nú til orkuöryggis almennings, orkuskipta og stefnu stjórnvalda um orkuöflun. Taka skal mið af vatnaáætlun, sem var ekki til árið 2011, og með reglugerð nr. 970/2026 liggur fyrir grunnur að mati á óbyggðum víðernum. Ekkert af þessu var lagt til grundvallar eða skoðað.

Vindorkukostir endurmetnir út frá nýjum lögum

Í tillögunni um sjö vindorkuhugmyndir fer sama verkefnisstjórn allt aðra leið. Faghóparnir endurmeta kostina meðal annars út frá breytingalögum ársins 2026, nýrri 10. gr. a um sérstök sjónarmið við mat vindorkuhugmynda, nýjum gögnum og nýjum sýnileikagreiningum. Verkefnisstjórn rekur sérstaklega að með lagabreytingunum hafi bæst við markmið um orkuöryggi almennings, orkuskipti og stefnu stjórnvalda um orkuöflun. Hér er talin full ástæða til að endurmeta kostina út frá nýjum lögum, þó fyrra mat sé einungis um eins árs gamalt, frá árinu 2025.

Vindmillur Vaðölduvers -mynd: Landsvirkjun

Niðurstaðan er að Garpsdalur fari í nýtingarflokk, Alviðra og Hnotasteinn í biðflokk, en Hrútmúlavirkjun, Mosfellsheiðarvirkjun I og II og Sólheimar í verndarflokk.

Það er rétt nálgun að meta virkjunarkosti út frá gildandi lögum og nýjustu gögnum. Spurningin er hvers vegna sama nálgun á ekki við um verndartillöguna. Verkefnisstjórn starfar samkvæmt lögum, og lögin gilda jafnt um báðar tillögur.

Einnig ástæða til athugasemda við vindorkutillöguna

Þótt nálgunin sé réttari er full ástæða til að gera athugasemdir við niðurstöðuna.

Orkuöflun fær lítið vægi. Þeir þættir sem horfa til orkuöflunar og bætt var við lögin eru metnir að mjög takmörkuðu leyti. Markmið stjórnvalda um orkuskipti koma hvergi fyrir í mati faghópa né í niðurstöðum verkefnisstjórnar um einstaka kosti. Sumarið 2026 ákvað verkefnisstjórn hins vegar að bæta mati á áhrifum á útsýnisflug flugvéla og þyrlna og svifflug við verksvið faghóps 2. Slíkt mat er ekki lögbundið samkvæmt sérstökum sjónarmiðum 10. gr. a og hefur ekki farið fram áður. Faghópurinn segist sjálfur ekki hafa haft ráðrúm til að byggja það inn í aðferðafræði sína og fjallar aðeins almennt um það. Engu að síður eru „möguleg áhrif á flug“ látin ráða afmörkun verndarsvæðis á Mosfellsheiði. Á sama tíma er hvergi í matinu horft til hagsmuna sem byggja á nýtingu orkunnar. Það á við um atvinnuuppbyggingu í anda atvinnustefnu stjórnvalda, gagnaver, fiskeldi og orkuskipti, en ekkert þessa fær sambærilega skoðun hjá nokkrum faghópi.