Orku- og veitufyrirtæki

Orku- og veitufyrirtæki í Samorku eru hátt í 50 talsins. Þau eru staðsett víðsvegar um landið og þjóna mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi.

Raforka og veituþjónusta er nauðsynleg forsenda fyrir atvinnurekstri og búsetu í landinu. Starfsemin skilar háu hlutfalli af landsframleiðslu, en að auki býr hún Íslendingum mikil lífsgæði sem mörg okkar líta á sem sjálfsagðan hlut.

Starfsfólk í orku- og veitufyrirtækjum á Íslandi er rúmlega 1800 talsins.

Helstu einkenni starfsfólks í orkugeiranum eru meðal annars hátt menntunarstig, hátt hlutfall iðnmenntunar og hár starfsaldur. Launin eru einnig góð og helgast það ekki síst af öllu fyrrnefndu.

Hlutfall kvenna í orkugeiranum er um 29% heilt yfir og eykst hægt og bítandi.

Lög og reglugerðir:

Fráveitur

Finna má lög og reglugerðir er varða málefni fráveitna má finna á vef umhverfisráðuneytisins(https://www.umhverfisraduneyti.is/lagagogn/mengunarvarnir/).

Hitaveitur

Hitaveitur falla undir orkulög(http://www.althingi.is/lagas/nuna/1967058.html) en reglugerðir um einstakar hitaveitur má finna hér á vefsíðu Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

Raforka

Lög og reglugerðir er varða málefni raforkufyrirtækja má finna hér á vef Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins(https://www.atvinnuvegaraduneyti.is/log-og-reglugerdir/orkumal/).

Vatnsveitur