Upplýsingar um lögmenn og þjónustu þeirra

Sérhæfing lögmanna er talsverð enda er ógjörningur fyrir þá að vera vel að sér á öllum sviðum lögfræðinnar. Mikilvægt er því fyrir þann sem leita þarf lögmannsaðstoðar að finna lögmann sem tekur að sér mál á því réttarsviði sem um ræðir.

Finna lögmann eftir málaflokki(https://www.lmfi.is/logmannalisti/malaflokkar)

Finna lögmann eftir lögmannsstofu(https://www.lmfi.is/logmannalisti)

Hlutverk lögmanna

Lögmenn eru órjúfanlegur þáttur af réttarkerfi landsins og þeir gegna lykilhlutverki í þeirri starfsemi sem fer fram fyrir dómstólunum.

Hlutverk lögmanna í þjóðfélaginu er m.a. að veita einstaklingum, fyrirtækjum, félagasamtökum og stofnunum lögfræðilega ráðgjöf og aðstoð, bæði utan og innan réttar. Lögmenn gæta hagsmuna skjólstæðinga sinna og sækja og verja rétt þeirra fyrir stjórnvöldum og dómstólum, í innbyrðis deilum þeirra og deilum við ríkisvaldið að einkarétti.

Í opinberum málum, sakamálum, gegna lögmenn sérstaklega mikilvægu hlutverki, þ.e. sem réttargæslumenn sakborninga og verjendur þeirra. Hlutverk lögmanna í þessum málaflokki er meðal annars að halda uppi vörnum fyrir sakborningana, veita þeim upplýsingar og ráð um réttarstöðu þeirra og sjá til þess að grundvallarreglum um málsmeðferð í sakamálum sé fylgt og að skjólstæðingar þeirra, sakborningarnir, fái réttláta og skjóta málsmeðferð, í samræmi við innlend lög og alþjóðlega mannréttindasáttmála.

Í öllum störfum sínum eru lögmenn bundnir ýmsum grundvallarskyldum, en ein sú veigamesta og mikilvægasta er trúnaðarskyldan, þar með talin þagnarskyldan, gagnvart skjólstæðingum þeirra (sbr. 22. gr. lögmannalaga(https://www.althingi.is/lagas/nuna/1998077.html))

Hverjir eru lögmenn

Lögmenn eru lögfræðingar sem hafa aflað sér réttinda til að flytja mál fyrir dómstólum landsins.

Munurinn á lögfræðingi og lögmanni:

Allir lögmenn eru lögfræðingar, þ.e. þeir hafa lokið BA/BS prófi og meistaragráðu í lögfræði við lagadeild háskóla sem er viðurkenndur hér á landi.

Einungis lögfræðingar sem hafa aflað sér réttinda til að flytja mál fyrir dómstólum landsins mega kalla sig lögmenn.

Kröfur sem þeir sem vilja vera lögmenn þurfa að uppfylla:

vera l ögráða og svo á sig kominn andlega að hann sé fær um að gegna störfum lögmanns ,

hafa aldrei orðið að sæta því að bú hans sé tekið til gjaldþrotaskipta

hafa aldrei hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára

hafa lokið fullnaðarnámi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi við lagadeild háskóla sem viðurkenndur er hér á landi samkvæmt lögum um háskóla

hafa setið námskeið til undirbúnings prófi til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður.

Allir lögmenn eru félagar í Lögmannafélagi Íslands og hér(https://www.lmfi.is/logmannalisti) er hægt að skoða lista yfir þá.

Héraðsdómur(https://www.heradsdomstolar.is/)

Til þess að öðlast málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum þarf lögfræðingur að sækja sérstakt námskeið og standast bóklega og verklega prófraun, sem nær til þeirra þátta sem snúa að störfum lögmanna, þar á meðal til siðareglna lögmanna.

Landsréttur(https://www.landsrettur.is/)

Til þess að öðlast málflutningsréttindi fyrir Landsrétti þarf lögmaður að hafa haft málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum í fimm ár og hafa flutt minnst 25 mál fyrir héraðsdómi eða sérdómstóli.

Hæstiréttur(https://www.haestirettur.is/)

Til þess að öðlast málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti, þarf lögmaður að hafa haft málflutningsréttindi fyrir Landsrétti í þrjú ár og hafa flutt minnst 15 mál munnlega fyrir Landsrétti

Sjá nánar

Lög og reglur um lögmenn(https://www.lmfi.is/lmfi/log-og-reglur-um-logmenn)

Til hvers þarf ég lögmann?

Því miður er staðreyndin sú að fæstir leita sér aðstoðar lögmanns fyrr en í óefni er komið. Þegar mál eru komin í slíkan farveg getur verið bæði tímafrekt og kostnaðarsamt fyrir aðila að ná fram rétti sínum og stundum reynist það ómögulegt. Til þess að forðast slíkar uppákomur er mælt með því að fólk leiti sér aðstoðar lögmanns áður en framkvæmt er eða gengist undir skuldbindingar. Að fá viðeigandi ráðgjöf fyrirfram getur sparað umtalsverða fyrirhöfn svo ekki sé talað um fjármuni.

Hvort sem þú hyggst ganga í hjúskap, kaupa þér fasteign, taka lán, stofna fyrirtæki, kaupa tryggingar eða skuldbinda þig með öðrum hætti, skaltu ráðfæra þig við lögmann, sem er sérfræðingur á viðkomandi sviði. Slíkt margborgar sig!

Hvað kostar þjónusta lögmanns?

Engin samræmd gjaldskrá er til fyrir þjónustu lögmanna og getur kostnaður vegna þjónustu þeirra því verið afar mismunandi eftir lögmannsstofum og ekki síður eftir tegundum mála. Í flestum tilvikum er þjónusta lögmanna verðlögð á grundvelli tímagjalds, þ.e. hver klukkustund kostar þá X þúsund krónur, auk virðisaukaskatts. Einnig getur þóknun lögmanns verið hagsmunatengd, þ.e. reiknuð sem hlutfall af fjárhæð sem deilt er um, t.d. í slysamálum, innheimtumálum o.fl.

Til þess að fá sem gleggsta mynd af kostnaði af þjónustu lögmanns er mælt með því að fólk nálgist eintak af gjaldskrá viðkomandi lögmanns eða lögmannsstofu eða fái sendar upplýsingar um áætlaðan kostnað vegna málsins.

Rétt er einnig að benda á að taki lögmaður að sér verk, ber honum að láta skjólstæðingi sínum í té sundurliðaðan reikning yfir verkkostnað í málinu. Sé þóknun áskilin á grundvelli tímagjalds skulu upplýsingar veittar úr tímaskýrslu ef eftir þeim er leitað.

Þá skal upplýst að lögmanni ber ávallt að vekja athygli skjólstæðings síns á möguleika á gjafsóknarheimild eða annarri opinberri réttaraðstoð þar sem það á við.

Smelltu hér til að sjá reglur um gjafsókn: Gjafsókn(https://www.stjornarradid.is/verkefni/log-og-rettur/gjafsokn/)

Rétt er að hafa í huga við skoðun á lögmannskostnaði að aðeins hluti fjárhæðarinnar er laun fyrir lögmanninn en kostnaður af rekstri lögmannsstofunnar kemur þar einnig inn í. Einnig er rétt að geta þess að vinnist mál fyrir dómi, og dómari ákvarðar málsaðila tiltekna fjárhæð í málskostnað úr hendi gagnaðila, getur sú staða komið upp að sú fjárhæð sé lægri en sú sem lögmaður þinn hefur áskilið sér í þóknun fyrir verkið og krefur þig um.

Ef þig vantar ráðleggingar hjá lögmanni þá býður Lögmannafélag Íslands upp á Lögmannavaktina - ókeypis lögfræðiráðgjöf(https://www.lmfi.is/lmfi/tharft-thu-logmann/logmannavaktin-okeypis-logfraediradgjof)

Hvaða skyldur hefur lögmaður gagnvart mér?

Lögmaður sem tekur að sér að gæta hagsmuna aðila í máli, ber ríkar skyldur gagnvart skjólstæðingi sínum, bæði samkvæmt landslögum og siðareglum lögmanna.