Öflun málflutningsréttinda

Munurinn á lögfræðingi og lögmanni

Allir lögmenn eru lögfræðingar, þ.e. þeir hafa lokið BA/BS prófi og meistaragráðu í lögfræði við lagadeild háskóla sem er viðurkenndur hér á landi.

Einungis lögfræðingar sem hafa aflað sér réttinda til að flytja mál fyrir dómstólum landsins mega kalla sig lögmenn. Allir lögmenn eru félagar í Lögmannafélagi Íslands og hér(https://www.lmfi.is/logmannalisti) er hægt að skoða lista yfir þá.

Kröfur sem þeir sem vilja vera lögmenn þurfa að uppfylla

Vera l ögráða og svo á sig kominn andlega að hann sé fær um að gegna störfum lögmanns.

Hafa aldrei orðið að sæta því að bú hans sé tekið til gjaldþrotaskipta.

Hafa aldrei hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára.

Hafa lokið fullnaðarnámi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi við lagadeild háskóla sem viðurkenndur er hér á landi samkvæmt lögum um háskóla.

Hafa setið námskeið til undirbúnings prófi til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður og lokið prófraun.

Réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi

Til þess að öðlast málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum þarf lögfræðingur að sækja sérstakt námskeið og standast bóklega og verklega prófraun, sem nær til þeirra þátta sem snúa að störfum lögmanna, þar á meðal til siðareglna lögmanna. Um framkvæmd námskeiðs og prófa er kveðið í reglugerð(https://island.is/reglugerdir/nr/1095-2005) um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður(https://island.is/reglugerdir/nr/1095-2005).

Námskeið til undirbúnings prófi til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður eru alla jafna haldin tvisvar ár ári, að vori og að hausti .

Prófraunin skiptist í tvo hluta, auk verklegrar prófraunar og stendur að jafnaði yfir í átta vikur , fimm í fyrri hluta og þrjár í seinni hluta.

Kennsla á námskeiðinu fer fram í kennslusal Lögmannafélags Íslands að Álftamýri 9, 108 Reykjavík . Gert ráð fyrir að þátttakendum bjóðist að taka þátt í gegnum fjarfundabúnað. Við skráningu verða þátttakendur beðnir um að tilgreina hvort þeir hyggist sitja námskeiðið í kennslusal eða gegnum fjarfundabúnað.

Gjald vegna þátttöku á fyrri hluta prófraunar árið 2023 er kr. 316.000 og greiðist við skrán­ingu. Gjald fyrir síðari hluta fer eftir fjölda þátttakenda. Prófgjald er innifalið í nám­skeiðsgjaldi.

Kennslugreinar í fyrri hluta eru:

Einkamálaréttarfar,

sakamálaréttarfar,

fullnustu­réttarfar,

samning lögfræðilegrar álitsgerðar og

lögfræðileg skjalagerð.

Kennslustundir í fyrri hluta skulu vera 55-65 og stendur kennsla yfir yfir allan daginn í tvær vikur. Að kennslu lokinni er upplestrarfrí sem er alla jafna ein vika. Þá tekur við tveggja vikna próftímabil þar sem tekin eru 5 próf. Próf í einkamálaréttarfari, sakamálaréttarfari og fullnusturéttarfari eru munnleg. Samning lögfræðilegrar álitsgerðar og lögfræðileg skjalagerð eru skrifleg próf.

Markmið með prófraun er að tryggja að prófmaður hafi:

tileinkað sér almenna þekkingu á íslenskum lögum til að geta stundað lögmannsstörf,