Góð ráð fyrir umsóknarferlið

Góð ráð fyrir umsóknarferlið

Þegar þú skrifar ferilskrá og ert að undirbúa þig fyrir atvinnuviðtal eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga.

Hvernig á að sækja um:

Finndu rétta starfið: Farðu inn á ráðningarsíðu(https://jobs.50skills.com/isb/is) Íslandsbanka og skoðaðu laus störf.

Lestu starfslýsingu vandlega: Vertu viss um að þín reynsla og áhugi passi við starfslýsingu og hæfnikröfur.

Fylltu út rafræna umsókn: Fylgdu skrefunum og passaðu að upplýsingar séu réttar. Lestu yfir áður en þú sendir og athugaðu málfar, stafsetningu og nákvæmni upplýsinga.

Sendu umsóknina: Staðfestu að umsókn hafi skilað sér - þú færð póst eða skilaboð með staðfestingu þegar hún hefur borist.

Ferilskrá:

Ferilskráin er lykilskjal sem gefur heildarmynd af þér, menntun, reynslu og hæfni. Vel uppsett og skipulögð ferilskrá eykur líkur á að þú fáir viðtal.

Persónuupplýsingar: Nafn, símanúmer, netfang og heimilisfang ef við á.

Stutt kynning: 2-3 línur um þig og þína styrkleika.

Menntun: Röðuð frá nýjustu til elstu. Nefndu skóla, nám, ár og prófgráður.

Starfsreynsla: Listaðu fyrri störf, hlutverk og helstu verkefni. Notaðu dæmi til að sýna árangur.

Hæfni og kunnátta: Tungumál, tölvukunnátta, þjónusta eða annað sem nýtist starfi.

Áhugamál og félagsstarf: Sýnir frumkvæði og breidd.

Samræmi og skipulag: Notaðu einfaldan og skýran stíl – forðastu óþarfa flækjur.

Kynningarbréf: