Fara í efni
Nám(https://www.uw.is/is/meistaranam) Meistaranám(https://www.uw.is/is/meistaranam/meistaranam) Hvor námsleiðin hentar mér?(https://www.uw.is/is/meistaranam/meistaranam/hvor-namsleidin-hentar-mer)
Sjávarbyggðafræði(https://www.uw.is/is/meistaranam/meistaranam/sjavarbyggdafraedi)
Haf- og strandsvæðastjórnun(https://www.uw.is/is/meistaranam/meistaranam/haf-og-strandsvaedastjornun)
Sögur frá fyrrum nemendum(https://www.uw.is/is/meistaranam/meistaranam/sogur-fra-fyrrum-nemendum)
Námsupplýsingar(https://www.uw.is/is/meistaranam/resources) Kennsluskrá(https://www.uw.is/is/meistaranam/resources/namskeidislysingar) Kennsluskrá 2026-2027(https://www.uw.is/is/meistaranam/resources/namskeidislysingar/namskeidislysing-2026-2027)
Kennsluskrá 2025-2026(https://www.uw.is/is/meistaranam/resources/namskeidislysingar/namskeidslysing-2025-2026)
Kennsluáætlun(https://www.uw.is/is/meistaranam/resources/kennsluaaetlun)
Stundakennarar(https://www.uw.is/is/meistaranam/resources/stundakennarar)
Handbók nemenda(https://www.uw.is/is/meistaranam/resources/handbok-nemenda)
Styrkir(https://www.uw.is/is/meistaranam/resources/styrkir)
Nemendafélag(https://www.uw.is/is/meistaranam/resources/student-union)
Stök meistaranámskeið(https://www.uw.is/is/meistaranam/stok-meistaranamskeid) Gestanám opinberir háskólar(https://www.uw.is/is/meistaranam/stok-meistaranamskeid/gestanam-opinberir-haskolar)
Alþjóðlegt skiptinám(https://www.uw.is/is/meistaranam/stok-meistaranamskeid/skiptinam-samstarfsskola)
Atvinnulíf/endurmenntun(https://www.uw.is/is/meistaranam/stok-meistaranamskeid/atvinnulif-endurmenntun)
Íslenskunámskeið(https://www.uw.is/is/meistaranam/islenskunamskeid) Íslenskunámskeiðin okkar(https://www.uw.is/is/meistaranam/islenskunamskeid/byrjendur-a1)
Dagsetningar og verð(https://www.uw.is/is/meistaranam/islenskunamskeid/dagsetningar-og-verd)
Gisting og ferðamáti(https://www.uw.is/is/meistaranam/islenskunamskeid/gisting-og-ferdamati)
Umsókn(https://www.uw.is/is/meistaranam/islenskunamskeid/umsokn)
Sækja um(https://www.uw.is/is/saekja-um) Meistaranám(https://www.uw.is/is/saekja-um/meistaranam) Forkröfur(https://www.uw.is/is/saekja-um/meistaranam/forkrofur-1)
Skráningargjald(https://www.uw.is/is/saekja-um/meistaranam/skraningargjald)
Dagsetningar og umsóknarfrestir(https://www.uw.is/is/saekja-um/meistaranam/dagsetningar-og-umsoknarfrestur)
Umsóknarferlið(https://www.uw.is/is/saekja-um/meistaranam/umsoknarferlid)
Fylgigögn(https://www.uw.is/is/saekja-um/meistaranam/fylgigogn)
Algengar spurningar(https://www.uw.is/is/saekja-um/meistaranam/algengar-spurningar)
Stök meistaranámskeið hjá HV(https://www.uw.is/is/saekja-um/stok-meistaranamskeid-hja-uw) Gestanám opinberir háskólar(https://www.uw.is/is/saekja-um/stok-meistaranamskeid-hja-uw/forkrofur)
Alþjóðlegt skiptinám(https://www.uw.is/is/saekja-um/stok-meistaranamskeid-hja-uw/gestanam-opinberir-skolar)
Atvinnulíf/endurmenntun(https://www.uw.is/is/saekja-um/stok-meistaranamskeid-hja-uw/atvinnulif-endurmenntun)
Stúdentalífið(https://www.uw.is/is/samfelag) Stúdentagarðar HV(https://www.uw.is/is/samfelag/nemendahusnaedi) Íbúðirnar(https://www.uw.is/is/samfelag/nemendahusnaedi/ibudirnar)
Úthlutun og leiguskilmálar(https://www.uw.is/is/samfelag/nemendahusnaedi/uthlutun-og-leiguskilmalar)
Verð og greiðslur(https://www.uw.is/is/samfelag/nemendahusnaedi/verd-og-greidslur)
Sæktu um hér(https://www.uw.is/is/samfelag/nemendahusnaedi/saektu-um-her)
Myndir(https://www.uw.is/is/samfelag/nemendahusnaedi/myndir)
Lífið á Ísafirði(https://www.uw.is/is/samfelag/lifid-a-vestfjordum) Um Ísafjörð(https://www.uw.is/is/samfelag/lifid-a-vestfjordum/vidburdir)
Tómstundir(https://www.uw.is/is/samfelag/lifid-a-vestfjordum/tomstundir)
Kostnaður(https://www.uw.is/is/samfelag/lifid-a-vestfjordum/gisting)
Samgöngur(https://www.uw.is/is/samfelag/lifid-a-vestfjordum/samgongur)
Háskólahátíð(https://www.uw.is/is/samfelag/haskolahatid) Um Háskólahátíð(https://www.uw.is/is/samfelag/haskolahatid/um-haskolahatid)
Myndir(https://www.uw.is/is/samfelag/haskolahatid/myndir)
Taktu þátt(https://www.uw.is/is/samfelag/haskolahatid/taktu-thatt)
Rannsóknir(https://www.uw.is/is/rannsoknir) Verkefni UW(https://www.uw.is/is/rannsoknir/verkefni-uw) Lost to Climate(https://www.uw.is/is/rannsoknir/verkefni-uw/losttoclimate)
ARCHAIC(https://www.uw.is/is/rannsoknir/verkefni-uw/archaic)
HOBB(https://www.uw.is/is/rannsoknir/verkefni-uw/hobb)
Carbon(https://www.uw.is/is/rannsoknir/verkefni-uw/carbon)
Seagirls(https://www.uw.is/is/rannsoknir/verkefni-uw/seagirls)
Eldri verkefni(https://www.uw.is/is/rannsoknir/verkefni-uw/eldri-verkefni-1)
Útgáfa og viðburðir(https://www.uw.is/is/rannsoknir/utgafa-og-vidburdir) Vísindaport(https://www.uw.is/is/rannsoknir/utgafa-og-vidburdir/visindaport)
Ráðstefnur(https://www.uw.is/is/rannsoknir/utgafa-og-vidburdir/radstefnur)
Meistararitgerðir nemenda(https://www.uw.is/is/rannsoknir/utgafa-og-vidburdir/meistararitgerdir-nemenda)
Birtar greinar(https://www.uw.is/is/rannsoknir/utgafa-og-vidburdir/birtar-greinar)
Tímarit(https://www.uw.is/is/rannsoknir/utgafa-og-vidburdir/timarit)
Samstarfsnet(https://www.uw.is/is/rannsoknir/samstarfsnet) Samstarfsnet UW(https://www.uw.is/is/rannsoknir/samstarfsnet/samstarfsnet-uw)
Rannsóknarsamfélag Vestfjarða(https://www.uw.is/is/rannsoknir/samstarfsnet/rannsoknarsamfelag-vestfjarda)
Fyrir gestafræðimenn(https://www.uw.is/is/rannsoknir/samstarfsnet/fyrir-gestafraedimenn)
Þjónusta(https://www.uw.is/is/thjonusta) Aðstaða og prófþjónusta(https://www.uw.is/is/thjonusta/adstada-og-profthjonusta) Fjarprófsstaður háskólanna(https://www.uw.is/is/thjonusta/adstada-og-profthjonusta/fjarprofsstadur-haskolanna)
Lestraraðstaða(https://www.uw.is/is/thjonusta/adstada-og-profthjonusta/lestraradstada-1)
Kennslustofur(https://www.uw.is/is/thjonusta/adstada-og-profthjonusta/kennslustofur)
Grunnþjónusta(https://www.uw.is/is/thjonusta/adstada-og-profthjonusta/grunnthjonusta)
Bókasafn(https://www.uw.is/is/thjonusta/adstada-og-profthjonusta/bokasafn) Útlán/millilán(https://www.uw.is/is/thjonusta/adstada-og-profthjonusta/bokasafn/utlan-millilan)
Bókasafnið á Ísafirði(https://www.uw.is/is/thjonusta/adstada-og-profthjonusta/bokasafn/bokasafnid-a-isafirdi)
Ert þú á leiðinni?(https://www.uw.is/is/thjonusta/ert-thu-a-leidinni) Vettvangsskólar(https://www.uw.is/is/thjonusta/ert-thu-a-leidinni/vettvangsskolar)
Rannsóknarmenn(https://www.uw.is/is/thjonusta/ert-thu-a-leidinni/rannsoknarmenn)
Ráðstefnuþjónusta(https://www.uw.is/is/thjonusta/ert-thu-a-leidinni/radstefnuthjonusta)
Um UW(https://www.uw.is/is/um-uw) Saga og samstarf(https://www.uw.is/is/um-uw/saga-og-samstarf) UW í hnotskurn(https://www.uw.is/is/um-uw/saga-og-samstarf/uw-i-hnotskurn)
Saga UW(https://www.uw.is/is/um-uw/saga-og-samstarf/saga-uw)
Tengslanet UW(https://www.uw.is/is/um-uw/saga-og-samstarf/tengslanet-uw)
Þróunarsjóður innflytjendamála(https://www.uw.is/is/um-uw/saga-og-samstarf/throunarsjodur-innflytjendamala)
Stjórnskipulag og stefna(https://www.uw.is/is/um-uw/stjornskipulag-og-stefna) Stofnaðilar(https://www.uw.is/is/um-uw/stjornskipulag-og-stefna/stofnadilar)
Skjöl(https://www.uw.is/is/um-uw/stjornskipulag-og-stefna/skjol)
Framtíðarsýn og stefna(https://www.uw.is/is/um-uw/stjornskipulag-og-stefna/framtidarsyn-og-stefna)
Ráðuneyti HVIN(https://www.uw.is/is/um-uw/stjornskipulag-og-stefna/raduneyti-hvin)
Meistaranámsnefnd(https://www.uw.is/is/um-uw/stjornskipulag-og-stefna/meistaranamsnefnd)
Fólkið(https://www.uw.is/is/um-uw/folkid) Stjórn(https://www.uw.is/is/um-uw/folkid/stjorn)
Starfsmenn(https://www.uw.is/is/um-uw/folkid/starfsmenn)
Kennarar(https://www.uw.is/is/um-uw/folkid/kennarar)
Dagbók skipstjóra(https://www.uw.is/is/um-uw/folkid/dagbok-skipstjora)
Skrifa um og fyrir UW(https://www.uw.is/is/um-uw/skrifa-um-og-fyrir-uw) Skýrslur(https://www.uw.is/is/um-uw/skrifa-um-og-fyrir-uw/skyrslur)
Merki og myndir(https://www.uw.is/is/um-uw/skrifa-um-og-fyrir-uw/merki-og-myndir)
Skrifa fyrir Háskólasamfélagið(https://www.uw.is/is/um-uw/skrifa-um-og-fyrir-uw/skrifa-fyrir-haskolasamfelagid)
Koma fram í Vísindaporti(https://www.uw.is/is/um-uw/skrifa-um-og-fyrir-uw/koma-fram-i-visindaporti)
Hafa samband(https://www.uw.is/is/hafa-samband)
Ugla(https://ugla.unak.is/)
Hafa samband(https://www.uw.is/is/hafa-samband)
Ugla(https://ugla.unak.is/)
Íslenska(https://www.uw.is/is)
English(https://www.uw.is/en)
Sögur frá fyrrum nemendum
Hvor námsleiðin hentar mér?(https://www.uw.is/is/meistaranam/meistaranam/hvor-namsleidin-hentar-mer)
Sjávarbyggðafræði(https://www.uw.is/is/meistaranam/meistaranam/sjavarbyggdafraedi)
Haf- og strandsvæðastjórnun(https://www.uw.is/is/meistaranam/meistaranam/haf-og-strandsvaedastjornun)
Sögur frá fyrrum nemendum(https://www.uw.is/is/meistaranam/meistaranam/sogur-fra-fyrrum-nemendum)
Hefurðu einhvern tíma velt því fyrir þér hvað útskrifaðir nemendur okkar eru að gera eftir nám við UW? Lestu sögur sumra þeirra hér.
Lynnee frá Bandaríkjunum - CRD 2023
Hvert er núverandi starf þitt?
Ég starfa nú hjá Oregon Coast Tourism Association, þar sem ég einbeiti mér að sjálfbærri þróun strandsvæða og ferðaþjónustu í dreifðum strandsamfélögum. Starfið felst meðal annars í að samræma starf ráðgjafahópa hagsmunaaðila, setja af stað upplýsingaherferðir fyrir ferðamenn um öryggi og ábyrga umgengni, vinna að verkefnum tengdum bláa hagkerfinu með það að markmiði að sjávarfang haldist innan heimabyggðar og taka þátt í innviðaverkefnum, svo sem uppbyggingu hjólaleiða fyrir malarhjól.
Starfsheiti: Industry Communications Coordinator hjá Oregon Coast Tourism Association.
Hvað úr náminu við Háskólasetrið telur þú hafa undirbúið þig best fyrir núverandi starf eða starfsferil?
Bæði Vestfirðir og strönd Oregon byggja á langri sögu sjávarútvegs en eru nú að færast í auknum mæli yfir í hagkerfi sem byggja á ferðaþjónustu. Þar sem um dreifð strandsvæði er að ræða standa svæðin frammi fyrir svipuðum áskorunum. Ég er sífellt að sjá hversu vel reynsla mín frá Háskólasetrinu hefur undirbúið mig fyrir samstarf við hagsmunaaðila um flókin málefni á borð við auðlindastjórnun strandsvæða, sjálfbæra ferðaþjónustu og opinbera stefnumótun. Í náminu lærði ég mikilvæga færni í að miðla flóknum upplýsingum til ólíkra hópa og útskrifaðist með sterkan vilja til að stuðla að því að ferðalög hafi jákvæðari áhrif, bæði fyrir ferðamanninn og áfangastaðinn.
Hver er uppáhaldsminningin þín frá tíma þínum við Háskólasetrið?
Uppáhaldsminningin mín er þegar ég tók þátt í að skapa hjólakeppnina Westfjords Way Challenge, þar sem ævintýrahjólreiðar og námið mitt mættust. Það var gríðarlega umfangsmikið verkefni að halda viðburðinn og að taka á móti hjólreiðafólki alls staðar að úr heiminum á þessu ótrúlega svæði er ein af bestu minningum mínum og eitt af því sem ég er hvað stoltust af.
Rob frá Bandaríkjunum - CMM 2014
Hvert er núverandi starf þitt?
Ég er nú að mestu kominn á eftirlaun en starfa enn sem varaformaður og úrskurðaraðili hjá Workplace Safety and Insurance Appeals Tribunal. Þar tek ég fyrir og úrskurða á lokastigi áfrýjunarmála vegna vinnuverndar og tryggingakrafna í Ontario í Kanada.
Hvað úr náminu við Háskólasetrið telur þú hafa undirbúið þig best fyrir núverandi starf eða starfsferil?
Sérstaklega hefur sá agi sem fylgdi því að skrifa meistararitgerð, endurskoða hana og verja, haft mikil áhrif á vinnu mína við ritun lagalegra úrskurða. Stór hluti starfs míns felst í því að lesa ítarlegar læknisfræðilegar skýrslur, skilja túlkun þeirra og tengja læknisfræðileg álit við reglur og lög. Það var við Háskólasetrið sem ég lærði fyrst að lesa og skilja fræðigreinar og vísindalegar niðurstöður sem byggja á gögnum.
Hver er uppáhaldsminningin þín frá tíma þínum við Háskólasetrið?
Auðvitað var það að sitja á kaffihúsi á Ísafirði og eiga alls konar áhugaverðar samræður við samnemendur og heimafólk. Að læra að baka pönnukökur er líka ofarlega á listanum. Kær kveðja til Gunnu Siggu – ég get enn ekki bakað þær eins og hún!
Ég segi líka oft söguna af því þegar við fórum í „leiðangur“ upp hlíðina í átt að Seljalandsdal til að tína rabarbara í bökur og sultu. Við gortuðum okkur af því hvað við hefðum verið útsjónarsöm við að afla okkur villtrar fæðu, aðeins til að komast að því síðar að við höfðum í raun rænt rabarbarabeð fjölskyldu Gunnu Siggu!
Hanna frá Kanada - CMM 2020
Hvert er núverandi starf þitt?
Ég starfa hjá Oceana og leiði verkefni sem miðar að verndun sléttbaksins, sem er í bráðri útrýmingarhættu, í Kanada. Ég vinn náið með atvinnuveiðum á snjókrabba og humri við Atlantshafsströnd Kanada og einnig við skipaiðnaðinn með það að markmiði að draga úr því að hvalir flækist í veiðarfærum eða verði fyrir skipum.