Skip to content
SAF leggjast alfarið gegn náttúru- og innviðagjaldi
október 8, 2026(https://saf.is/2026/10/08/)
Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Íumsögn samtakanna við drög að frumvarpinu(https://saf.is/wp-content/uploads/2026/10/20261007-umsogn-saf-um-drog-ad-frumvarpi-til-laga-um-natturu-og-innvidagjald.pdf) í samráðsgátt stjórnvalda er bent á að ekki hafi verið sýnt fram á nauðsyn nýrrar skattlagningar, áhrif hennar á ferðaþjónustuna hafi ekki verið metin og að gjaldið geti haft neikvæð áhrif á samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar.
SAF benda á að ferðamenn greiði nú þegar ýmsa skatta og gjöld sem ætlað er að standa undir uppbyggingu og viðhaldi innviða, meðal annars gistináttaskatt og innviðagjald á skemmtiferðaskip. Markmið fyrirhugaðs náttúru- og innviðagjalds skarist verulega við markmið þessara gjalda. Samtökin telja því að stjórnvöld þurfi fyrst að sýna fram á hvaða fjármögnunarþörf sé ómætt og hvers vegna núverandi tekjustofnar dugi ekki til.
Aukin skattheimta á viðkvæmum tíma
Í umsögninni er sérstaklega varað við áhrifum gjaldsins á samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu. Ísland sé þegar dýr áfangastaður og rekstrarumhverfi fyrirtækja hafi versnað á undanförnum árum. Afkoma ferðaþjónustufyrirtækja dróst saman um 54,6% árið 2024 og fjöldi erlendra ferðamanna hefur staðið nær í stað frá árinu 2023.
Þá benda SAF á að gjaldið geti lagst með mjög mismunandi þunga á einstakar ferðaþjónustuvörur og landsvæði. Samkvæmt útreikningum samtakanna gæti það meðal annars hækkað verð dagsferða um Gullna hringinn um allt að 45% og áhrif á fyrirtæki í Bláskógabyggð og nærliggjandi sveitarfélögum geti orðið verulega neikvæð.
Tekjurnar ekki tryggðar til uppbyggingar innviða
SAF gagnrýna jafnframt að tekjur af gjaldinu eigi að renna óskiptar í ríkissjóð, án þess að tryggt sé að þær nýtist til þeirra verkefna sem gjaldinu er ætlað að fjármagna. Samtökin telja einnig að fyrirhuguð gjaldtaka sé ekki markviss leið til álagsstýringar á viðkomandi ferðamannastöðum.
Samtökin gera auk þess athugasemdir við samræmi frumvarpsins við EES-samninginn, þar sem gjaldskyldan byggist á skattalegri heimilisfesti. Þá telja SAF að fyrirhugaður gildistökutími sé allt of skammur, enda séu ferðir fyrir sumarið 2027 þegar að stórum hluta seldar.
SAF leggja áherslu á að uppbygging innviða og náttúruvernd séu mikilvæg verkefni, en að lausnin felist í skýrari forgangsröðun og markvissri nýtingu þeirra tekna sem ferðaþjónustan skilar nú þegar, fremur en nýrri skattheimtu.
Lesa umsögn SAF um náttúru- og innviðagjald(https://saf.is/wp-content/uploads/2026/10/20261007-umsogn-saf-um-drog-ad-frumvarpi-til-laga-um-natturu-og-innvidagjald.pdf)
Tengdar fréttir
Allar
Alþjóðastarf
Efnahagsmál
Fagnefndir
Ferðagögn
Fræðsla
Fréttir
Greinar
Öryggi
Samkeppnishæfni
Sjálfbærni
Umsagnir
Útgáfa
Viðburðir
Vinnumarkaður
MCEU ráðstefna – Hvað kemur næst?(https://saf.is/2026/10/29/mceu-radstefna-hvad-kemur-naest/)
MCEU ráðstefna – Hvað kemur næst?(https://saf.is/2026/10/29/mceu-radstefna-hvad-kemur-naest/)
•
29/10/2026
•
Fréttir(https://saf.is/flokkar/frettir/)
Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á neðangreindri lokaráðstefnu Evrópuverkefnis um örvottanir fyrir örnám í tengslum við ferðaþjónustu.