Hlekkur á forsíðu(https://www.listasafn.is/)
Í dag
Opna leit
English(https://www.listasafn.is/en/visit/einar-jonsson-museum/)
Kaupa miða(https://www.listasafn.is/midasala/)
Valmynd
Listasafn Einars Jónssonar
Aðstaðan
10:00–17:00
Alla daga
Staðsetning
Hallgrímstorg 3, 101 Reykjavík
Símanúmer
Listasafn Einars Jónssonar, staðsett í hjarta Reykjavíkur við Skólavörðuholt, er einstakur staður sem býður gestum upp á margbrotna upplifun í sögulegu umhverfi.
Einar Jónsson teiknaði húsið, sem stundum er nefnt Hnitbjörg, um 1916 með hjálp Einars Erlendssonar húsameistara. Einar bjó þar með konu sinni Önnu frá 1920 um áratugaskeið. Safnið var opnað almenningi árið 1923 og hafa þar með opnast dyr inn í hugarheim Einars Jónssonar, brautryðjanda íslenskrar myndhöggvaralistar, sem sótti innblástur í þjóðsögur, trúarhugmyndir og dulspeki og skapaði verk sem fjalla um baráttu efnis og anda.
Ath. að eins og er safnið ekki aðgengilegt hjólastólum. Unnið er að því að finna lausn.
Stórbrotin listaverk myndhöggvarans prýða glæsilega sali safnsins.
Auk sýningarinnar Andi og efnisbönd, sem gefur djúpa innsýn í sköpunarverk Einars Jónssonar er hægt að heimsækja höggmyndagarðinn á bak við húsið þar sem 26 bronsafsteypur verka Einars prýða gróskumikinn garð sem er opinn öllum, árið um kring, dag og nótt. Í húsinu má einnig skoða einstaka íbúð Einars og Önnu Jónsson þar sem frumlegur stíll og persónulegir gripir varðveitast í upprunalegri mynd.
Við bjóðum öll velkomin – hvort sem um er að ræða listunnendur, fjölskyldur eða þá sem vilja kynna sér sögu og menningu Reykjavíkur í óvenjulegu og fallegu umhverfi. Komdu og upplifðu töfra Listasafns Einars Jónssonar!
Yfirstandandi sýning í safnhúsinu
Einar Jónsson Andi og efnisbönd(https://www.listasafn.is/list/syningar/andi-og-efnisbond/)
1.1.2026 — 12.1.2028
Listasafn Einars Jónssonar
Á döfinni
lau
21. nóv
kl. 14:00
Krakkaklúbburinn Krummi
Glóandi geislabaugar
Krummi
Listasafn Einars Jónssonar
Glóandi geislabaugar Geislabaugar eru algeng tákn fyrir heilagleika og góðmennsku. Í verkum Einars Jónssonar koma fyrir margskonar geislabaugar. Sumir eru einfaldir og sléttir á meðan aðrir ná utan um heila manneskju og eru mynstraðir. Við skoðum þessa fjölbreyttu og fallegu geislabauga og búum svo við til okkar eigin geislabaug til að setja upp um leið og við hugsum um mikilvægi þess að vera góðar manneskjur.
Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um sýningarnar í Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi. Með Krakkaklúbbnum Krumma vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.