Samstarfsverkefni(https://www.lhi.is/althjodasamstarf/althjodleg-samstarfsverkefni/) Fréttir(https://www.lhi.is/frettir/) Viðburðir(https://www.lhi.is/vidburdir/) Dagatal(https://www.lhi.is/dagatal/) Lífið í LHÍ(https://www.lhi.is/lifid-i-lhi/) Hafa samband(https://www.lhi.is/hafa-samband/)
Ugla(https://ugla.lhi.is) Canvas(https://canvas.lhi.is)
IS(https://www.lhi.is/um-lhi/tilkynningar-um-osaemilega-hegdun/) / EN(https://www.lhi.is/en/about-lhi/notifications-of-excessive-behavior/)
Listaháskóli Íslands — Iceland University of the Arts(https://www.lhi.is/)
Sækja um →(https://ugla.lhi.is/namsumsoknir/)
Sækja um →(https://ugla.lhi.is/namsumsoknir/)
Vinsælar leitir
Útskrift(https://www.lhi.is/?s=%C3%9Atskrift)
Umsóknir(https://www.lhi.is/?s=Ums%C3%B3knir)
Myndlist(https://www.lhi.is/?s=Myndlist)
Doktorsnám(https://www.lhi.is/?s=Doktorsn%C3%A1m)
Opni LHÍ(https://www.lhi.is/?s=Opni%20LH%C3%8D)
Skiptinám(https://www.lhi.is/?s=Skiptin%C3%A1m)
Bókasafn(https://www.lhi.is/?s=B%C3%B3kasafn)
Um LHÍ
Tilkynna um ósæmilega hegðun
Hvernig á að tilkynna einelti, áreitni eða ofbeldi — ferlið, trúnaður og hverjir taka við tilkynningum.
Jafnræði og virðing skal ríkja í öllum samskiptum í Listaháskóla Íslands. Tjáningarfrelsi er virt og skoðanaskiptum er hagað á málefnalegan og ábyrgan hátt. Starfsfólk og nemendur leggja metnað sinn í áreiðanleg vinnubrögð og bera umhyggju og virðingu fyrir vinnu og tíma hvers annars.
Inngangur
Lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum (46/1980) er ætlað að tryggja öruggt og heilsusamlegt starfsumhverfi á vinnustöðum. Reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum, nr. 1009/2015, er sett með stoð í lögunum. Reglugerðin gildir um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum og útfærir ákvæði laga nr. 46/1980 með ítarlegri hætti.
Jafnræði og virðing skal ríkja í öllum samskiptum í Listaháskóla Íslands. Tjáningarfrelsi er virt og skoðanaskiptum er hagað á málefnalegan og ábyrgan hátt. Starfsfólk og nemendur leggja metnað sinn í áreiðanleg vinnubrögð og bera umhyggju og virðingu fyrir vinnu og tíma hvers annars.
Einelti eða önnur áreitni verður ekki umborin undir neinum kringumstæðum. Kynbundin og kynferðisleg áreitni og ofbeldi er með öllu óheimil af hálfu starfsfólks og nemenda Listaháskóla Íslands (LHÍ) og fortakslaust bönnuð í allri starfsemi skólans. Áreitni og ofbeldi verður hvorki þaggað niður né liðið undir neinum kringumstæðum.
Allar ábendingar og kvartanir um einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi skulu teknar alvarlega og settar í ferli samkvæmt viðbragðsáætlun LHÍ.
Markmið
Markmið þessarar áætlunar er að tryggja að úrræði séu til staðar fyrir aðila sem telja sig hafa orðið fyrir einelti, kynbundinni áreitni, kynferðislegri áreitni eða ofbeldi. Í viðbragðsáætlun þessari er fjallað um það verklag og málsmeðferð sem tryggir að LHÍ bregðist skjótt við tilkynningum.
Einelti, kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni og ofbeldi er ekki liðið í samskiptum starfsfólks og nemenda, meðal starfsfólks eða nemenda innbyrðis, né heldur í samskiptum starfsmanna eða nemenda við einstaklinga utan Listaháskólans enda eigi samskiptin sér stað í tengslum við starfsemi LHÍ.
Skilgreiningar
Eftirfarandi skilgreiningar eru samkvæmt reglugerð nr. 1009/2015:
Einelti: Síendurtekin hegðun sem almennt er til þess fallin að valda vanlíðan hjá þeim sem fyrir henni verður, svo sem að gera lítið úr, móðga, særa eða ógna viðkomandi eða að valda honum ótta. Skoðanaágreiningur eða ágreiningur vegna ólíkra hagsmuna fellur ekki hér undi r.
Skoðanaágreiningur eða ágreiningur vegna ólíkra hagsmuna fellur ekki hér undir vegna þess að slíkt telst hvorki viðvarandi né endurtekið kerfisbundið.
Dæmi um birtingarmyndir eineltis:
ítrekuð ómálefnaleg gagnrýni
niðurlæging
baktal eða sögusagnir
meðvituð útilokun
þöggun
upplýsingum vísvitandi haldið frá aðila
skemmdarverk
óraunhæft eftirlit
skortur á umburðarlyndi gagnvart sérstöðu einstaklinga. (Vinnueftirlit, 2021)
Kynbundin áreitni: Hegðun sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi og skapa aðstæður sem eru ógnandi, fjandsamlegar, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi fyrir viðkomandi.
Kynferðisleg áreitni: Hvers kyns kynferðisleg hegðun sem hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu þess sem fyrir henni verður, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna. Hegðunin getur verið orðbundin, táknræn og/eða líkamleg.
Ofbeldi: Hvers kyns hegðun sem leiðir til, eða gæti leitt til, líkamlegs eða sálræns skaða eða þjáninga þess sem fyrir henni verður, einnig hótun um slíkt, þvingun eða handahófskennda sviptingu frelsis.
Viðbragðsteymi
Framkvæmdaráð skipar aðila viðbragðsteymis LHÍ og getur óskað eftir upplýsingum um störf þess.
Við skipan skal leitast við að hafa jöfn kynjahlutföll. Komi upp vafi á hæfi nefndarmanna í einstaka málum skal viðkomandi aðili víkja sæti og annar skipaður í hans stað. Farið skal eftir stjórnsýslulögum varðandi hæfi, skal sérstaklega horft til þess hvernig hæfi horfir við aðilum viðkomandi máls. Aðilum teymisins er skylt að gæta trúnaðar um öll mál sem til þess berast eftir því sem kostur er.
Í viðbragðsteymi sitja tveir utanaðkomandi sérfræðingar sem hafa þekkingu og reynslu af meðferð slíkra mála. Tilkynnt er um mál til í þar til gerðri tilkynningargátt neðar á þessari síðu. Tilkynning berst til mannauðsstjóra LHÍ, sem hefur eftirfylgni með málum og situr almennt fundi viðbragðsteymisins.
Tilkynningar / Gildissvið
Telji einhver að starfsmaður eða nemandi LHÍ hafi lagt sig í einelti, beitt sig ofbeldi, kynbundinni áreitni eða kynferðislegri áreitni, er viðkomandi eindregið hvattur til að tilkynna málið í þar til gerðri tilkynningargátt neðar á þessari síðu. Tilkynningin berst mannauðsstjóra LHÍ.
Hafi starfsmaður eða nemandi innan LHÍ rökstuddan grun eða vitneskju um háttsemi sem talist gæti einelti, kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni eða ofbeldi gagnvart öðrum starfsmanni eða nemanda LHÍ, skal viðkomandi snúa sér með tilkynningu um brot til fyrrgreinds aðila.
Framangreint á einnig við um háttsemi sem er í tengslum við samskipti starfsmanna eða nemenda LHÍ við einstaklinga sem ekki teljast starfsmenn eða nemendur skólans, en samskiptin eiga sér stað í tengslum við starfsemi skólans.
Málsmeðferð
Viðbragðsteymið skal rannsaka mál sem til þess berast, gæta jafnræðis og meðalhófs og skila af sér niðurstöðu svo fljótt sem verða má.
Þær aðgerðir sem gripið er til í ferli máls eru almennt í samráði við þann aðila sem meint brot beinist gegn samkvæmt tilkynningu (meintur þolandi). Trúnaðar er gætt um það sem fram kemur í viðtölum, eftir því sem kostur er. Viðbragðsteymið leitar samþykkis viðmælenda sinna ef þörf er talin á að miðla upplýsingum sem fram koma í viðtölum vegna úrvinnslu málsins.
Við tilkynningu skal viðbragðsteymið bjóða þeim sem tilkynnir um grun um einelti, kynbundna áreitni, kynferðislega áreitni eða ofbeldi, á fund sinn. Berist tilkynning frá öðrum aðila en þeim sem brotið er gegn skal teymið bjóða þeim aðila sem talið er að hafi orðið fyrir einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni eða ofbeldi (meintur þolandi) á fund og kanna afstöðu til tilkynningarinnar.
A – Fyrstu skref í kjölfar tilkynningar og óformleg málsmeðferð Ef starfsmaður eða nemandi LHÍ telur sig hafa orðið fyrir háttsemi sem viðkomandi telur vera einelti (eða eineltistilburði), kynbundna áreitni, kynferðislega áreitni og/eða ofbeldi og sú háttsemi er í tengslum við samskipti innan skólans, getur viðkomandi haft samband við mannauðsstjóra LHÍ og óskað eftir viðtali við meðlim/meðlimi viðbragðsteymis LHÍ.