EN Netbanki(https://netbanki.kvika.is)
Forsíða /
Sjálfbærni /
Fjárfestingar og viðskiptahættir
Fjárfestingar og viðskiptahættir
Langtímahugsun er mikilvæg þar sem traust viðskiptasambönd verða til og þróast yfir langt tímabil. Langtímahugsun stuðlar jafnframt að jákvæðum áhrifum á samfélagið og styður markvisst við sjálfbærni.
Kvika styður við sjálfbæra þróun og leggur áherslu á að auka hlut fjárfestinga sem falla innan aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga. Ljóst er að einn af lykilþáttum fyrir framgang sjálfbærrar þróunar er að fjármagni sé beint í sjálfbæra uppbyggingu.
Kvika hefur sett sér stefnu um ábyrgar lánveitingar og fjárfestingar sem felur í sér markmið um að tekið sé mið af UFS þáttum við lánveitingar, breytingu á skilmálum útlána, endurfjármögnun og við töku ákvarðana um fjárfestingar.
Kvika hefur einnig skilgreint stefnu um ábyrgt vöru- og þjónustuframboð(https://kvika.cdn.prismic.io/kvika/siHXlXY0q5ugWtvI_Stefnaum%C3%A1byrgtv%C3%B6ru-og%C3%BEj%C3%B3nustuframbo%C3%B0.pdf) en meginmarkmið stefnunnar er að styðja við og þróa áfram vöru- og þjónustuframboð sem styður við sjálfbærni og gildi bankans um langtímahugsun.
Kvika hefur sett siðareglur fyrir birgja(https://kvika.cdn.prismic.io/kvika/pDuTekeEsKMc-PWn_Si%C3%B0areglurKvikubankafyrirbirgja.pdf) og hvetur aðila sem bankinn er í samstarfi við til að virða mannréttindi og stuðla að framangi sjálfbærrar þróunar í starfsemi sinni.
Framtakssjóðir í rekstri Kviku Framtak eru áhrifafjárfestar sem leggja áherslu á að styðja stjórnendur með markvissum hætti í að bæta rekstur og árangur félaga í eigu sjóðanna.