Fara í efni
Íþrótta- og ólympíusamband Íslands(https://www.isi.is/)
Rafrænt málþing um heilsueflingu 60+
29. okt. 2026
Deildu
Bjartur lífsstíll stendur fyrir rafrænu málþingi um heilsueflingu 60+ fimmtudaginn 12. nóvember kl. 13:00–15:00. Bjartur lífsstíll hefur staðið fyrir málþingi undanfarin ár og í ár verður engin undantekning þar á.
Á dagskrá eru fjölbreytt og fræðandi erindi um þjálfun, heilsu, virkni og almenna líðan eldra fólks. Fjallað verður meðal annars um hreyfingu á öllum æviskeiðum, hollt mataræði, dans með eldri borgurum, sjálfboðaliðastörf í íþróttahreyfingunni og mýtur um styrktarþjálfun. Markmiðið er að miðla þekkingu, deila reynslu og kynna leiðir sem styðja við heilbrigt, virkt og innihaldsríkt líf á efri árum.
Málþingið er öllum opið og þátttaka er ókeypis. Það er ætlað þjálfurum, iðkendum, starfsfólki sveitarfélaga, heilbrigðisstarfsfólki og öllum sem hafa áhuga á heilsueflingu eldri aldurshópa.
Bjartur lífsstíll er samstarfsverkefni ÍSÍ og Landssambands eldri borgara (LEB) og hefur verið starfrækt frá árinu 2022.
Skráning og hlekkur
Þau sem skrá sig fá sent fundarboð og áminningu þegar nær dregur.
Skráning á málþingið(https://forms.cloud.microsoft/e/pms9irfk5J)