570 1700

gedhjalp@gedhjalp.is English(https://gedhjalp.is/about-gedhjalp/)

Mannréttindi í geðheilbrigðisþjónustu

Þessi bæklingur er útbúinn af Landssamtökunum Geðhjálp og er ætlaður fólki sem sætir nauðung og þvingun sökum sjálfræðis- eða lögræðissviptingar. Við viljum styðja þig til að þekkja réttindi þín og láta rödd þína heyrast.

Lesa bækling(https://gedhjalp.is/wp-content/uploads/2026/03/THu-att-rett-mannrettindabaeklingur.pdf)

Þú átt réttindi

Þú hefur ákveðin réttindi sem eru varin í lögum um réttindi sjúklinga (74/1997), lögum um sjúkraskrár (55/2009) og lögræðislögunum (71/1997). Þú átt rétt á að:

Vita og skilja ástæðu nauðungarvistunar

Einstaklingur sem er nauðungarvistaður á rétt á að læknir kynni honum og geri skýra grein fyrir ástæðum vistunarinnar tafarlaust, eða svo fljótt sem ástand leyfir.¹

Fá aðstoð sérstaks ráðgjafa

Nauðungarvistaður einstaklingur á rétt á aðstoð sérstaks ráðgjafa og til að ræða við ráðgjafann einslega um hvað eina sem nauðungarvistunina varðar og hafa samband við hann reglulega. Vakthafandi lækni ber skylda til að kynna nauðungarvistuðum einstaklingi um þennan rétt og kalla ráðgjafann til án tafar.¹

Bera ákvörðun um nauðungarvistun umfram 72 klukkustundir undir dómstóla

Nauðungarvistun má ekki vara lengur en 72 klukkustundir nema til komi ákvörðun sýslumanns. Nauðungarvistun samkvæmt ákvörðun sýslumanns má ekki vara lengur en í 12 vikur. Nauðungarvistaður einstaklingur á hvenær sem er rétt á að bera ákvörðun um nauðungarvistun undir dómstóla og skal sérstakur ráðgjafi aðstoða við þá máls meðferð.

Fá upplýsingar um meðferðina

Þau sem þiggja heilbrigðisþjónustu eiga skýlausan rétt til að fá upplýsingar um fyrirhugaða meðferð, framgang hennar, kosti og galla. Einnig á að veita upplýsingar um önnur möguleg úrræði og mögulegar afleiðingar þess ef ekkert er gert. Þetta á að gera á þann hátt og við þau skilyrði að viðkomandi geti skilið upplýsingarnar.²

Fá aðgengi að eigin sjúkraskrá

Öll eiga rétt á aðgangi að eigin sjúkraskrá og til að fá afrit af henni ef þess er óskað.³

Eiga samskipti við umheiminn

Það má ekki taka síma, tölvu eða önnur samskiptatæki af nauðungarvistuðum einstaklingi nema brýnar ástæður krefji. Einstaklingur sem er nauðungarvistaður má hafa samband við fjölskyldumeðlimi, vini, kunningja, samtök, lögfræðinga og málsvara sem dæmi.

Biðja um annað álit

Öll eiga skýlausan rétt á að biðja um annað álit á greiningu, meðferð, ástandi og batahorfum. Sá réttur nær einnig til mats læknis á nauðsyn nauðungarvistunar. Þau geta óskað eftir að ákveðinn læknir aðstoði þá eða komið því á framfæri að þau vilji ekki að ákveðinn læknir veiti þeim aðstoð.

Með lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) haustið 2025, eru mannréttindi þín enn skýrari.