Fossar(https://fossar.is)
Netbanki Netbanki(https://ebank.iv.is/Notandi/Innskraning)
English English(https://fossar.is/en/the-company/board-and-governance/)
English English(https://fossar.is/en/the-company/board-and-governance/)
Forsíða(https://fossar.is)
Fyrirtækið(https://fossar.is/fyrirtaekid/)
Stjórn og stjórnarhættir
Stjórn og stjórnarhættir
Stjórn
Magnús Ingi Einarsson(https://fossar.is/starfsmadur/6557/)
Stjórnarformaður
magnus.einarsson@fossar.is
Magnús Ingi er stjórnarformaður Fossa fjárfestingarbanka.
Magnús gegnir í dag stöðu fjármálastjóra SKEL fjárfestingafélags. Áður starfaði hann hjá Kviku banka og forverum í yfir 16 ár og er því með yfirgripsmikla þekkingu á fjármálamörkuðum. Þar starfaði hann m.a. sem framkvæmdastjóri bankasviðs á árunum 2019-2022 og sem framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar á árunum 2015-2019. Magnús var yfir fjárstýringu hjá Straumi fjárfestingabankaá árunum 2012-2015 og í áhættustýringu bankans á árunum 2006-2012.
Magnús situr í stjórn nokkurra félaga í eigu SKEL fjárfestingafélags, en þar má nefna Dranga, Orkuna, Samkaup, Lyfjaval og Baridi Iceland.
Magnús er með M.Sc. gráðu í vélaverkfræði frá Virginia Tech og B.Sc. gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands.
Haraldur Þórðarson(https://fossar.is/starfsmadur/haraldur-thordarson/)
Stjórnarmeðlimur
Haraldur I. Þórðarson er stjórnarmeðlimur Fossa fjárfestingarbanka hf.
Haraldur hefur langa reynslu af störfum á fjármálamarkaði og er forstjóri Skaga, móðurfélags Fossa. Haraldur er einn stofnenda Fossa fjárfestingarbanka og var jafnframt forstjóri hans árin 2015 til 2023 . Á árunum 2011 til 2015 gegndi hann stöðu framkvæmdastjóra markaðsviðskipta Straums fjárfestingabanka hf. og átti jafnframt sæti í framkvæmdastjórn bankans á sama tímabili. Á árunum 2007 til 2010 var hann framkvæmdastjóri fjárstýringar Exista hf. og forstöðumaður fjármögnunar hjá sama félagi frá árinu 2006. Þar áður vann Haraldur í fjárstýringu Kaupþings banka hf. á tímabilinu 2003 til 2006.
Haraldur er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og Global Executive MBA gráðu frá IESE Business School. Hann hefur jafnframt lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
Marta Guðrún Blöndal(https://fossar.is/starfsmadur/marta-gudrun-blondal/)
Stjórnarmeðlimur
marta.blondal@fossar.is
Marta Guðrún er stjórnarmeðlimur Fossa fjárfestingarbanka hf.
Marta gegndi síðast stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækjaþróunar hjá ORF Líftækni. Hún starfaði hjá ORF Líftækni frá árinu 2018 til 2026, en fram til ársloka 2022 var hún einnig yfirlögfræðingur BIOEFFECT hf. Á árunum 2014-2018 var Marta yfirlögfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Á sama tímabili var hún framkvæmdastjóri Gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands. Áður starfaði Marta á Juris lögmannsstofu, hjá Útlendingastofnun, innanríkisráðuneytinu og endurupptökunefnd. Marta hefur víðtæka þekkingu á lagaumhverfi íslenskra fyrirtækja og góðum stjórnarháttum og hefur komið að útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja frá árinu 2014.
Marta situr í stjórn Skaga hf., móðurfélags Fossa og Olíudreifingar ehf.
Marta Guðrún er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og BA gráðu frá sama skóla. Hún hefur jafnframt málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi.
Anna Baldursdóttir(https://fossar.is/starfsmadur/anna-baldursdottir/)
Stjórnarmeðlimur
Anna Baldursdóttir er stjórnarmaður Fossa fjárfestingarbanka hf.
Anna er ráðgjafi með yfirgripsmikla reynslu í fjármálageiranum. Hún hóf feril sinn hjá Íslandsbanka og stýrði útlánateymi í London ásamt því að aðstoða slitastjórn Glitnis við umsýslu og endurheimtu erlendra lánasafna. Anna hefur starfað hjá Royal Bank of Scotland sem stjórnandi og úrskurðaraðili í verkefnum tengdum útlánastarfsemi og sölu afleiðna til lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Anna er hagfræðimenntuð frá Háskóla Íslands og með M.Sc. gráðu í fjármálum frá London Business School ásamt því að hafa lokið LEAD stjórnunarnámi frá Stanford háskóla.
Guðný Arna Sveinsdóttir(https://fossar.is/starfsmadur/gudny-arna-sveinsdottir/)